Ári eftir andlát þýsku tvíburasystranna Alice og Ellen Kessler, sem um áratugaskeið voru meðal þekktustu skemmtikrafta Evrópu, hefur kveðjubréf þeirra til nánustu vina verið gert opinbert.Systurnar voru 89 ára þegar þær fengu dánaraðstoð á heimili sínu í Grünwald í útjaðri München í nóvember í fyrra. Andlát þeirra vakti heimsathygli á sínum tíma en í bréfinu varpa þær frekara ljósi á ástæður ákvörðunar sinnar.Breska blaðið Guardian fjallar um bréfið, sem vinkona systranna hefur nú gert opinbert.
Heimsfrægu tvíburasysturnar létust sama dag – Nú hefur kveðjubréf þeirra verið birt