Greint var frá því í morgun að danska lögreglan hefði afstýrt banatilræði sem beindist gegn bandarísk-úkraínska rapparanum Kyivstoner. Hann átti að halda tónleika í nágrenni Kaupmannahafnar 25. september en þeim var aflýst eftir að tilræðismennirnir tilvonandi voru teknir fastir.
Málið kom fyrir augu almennings fyrst í morgun þegar tveir menn voru færðir fyrir dómara. Alls hafa fjórir verið handteknir í tengslum við málið en tveir þeirra hafa ekki verið ákærðir.
Yfirvöld í Póllandi sögðu frá því í sumar að þarlendur maður hefði verið handtekinn vegna gruns um að hann ætlaði að myrða Kyivstoner fyrir rússneska leyniþjónustu. Rapparinn, sem heitir í rauninni Albert Vasiliev, er einnig með bandarískan ríkisborgararétt.
Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur sagði á blaðamannafundi síðdegis í dag að rússneska varnarmálafulltrúanum í Danmörku yrði vísað úr landi.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fordæmdi tilræðið á samfélagsmiðlum.
„Óhugnanlegar fregnir berast frá Danmörku af banatilræði sem skipulagt var af Kreml. Við fordæmum ósvífnar tilraunir Rússlands til að bera ofbeldi inn á yfirráðasvæði bandalagsríkja – ekkert mun veikja samstöðu okkar, grafa undan einbeitni okkar eða draga úr skuldbindingu okkar við að styðja Úkraínu,“ skrifar hún.