Samkvæmt Take-Two Interactive, móðurfyrirtæki Rockstar Games sem framleiðir leikinn, seldust rúmlega 32 milljón eintök af leiknum í forsölu, það er að segja, áður en leikurinn kom út.
Á fyrsta útgáfudegi halaði leikurinn inn álíka miklu og tvær síðustu Avatar-myndir James Cameron samanlagt. Með sölu fyrsta dagsins einungis hefur Grand Theft Auto IV þegar farið fram úr tekjuhæstu kvikmynd allra tíma, Avengers: Endgame, á einum degi.
Leikurinn kom út aðfaranótt fimmtudags hér á landi fyrir Playstation 5 og Xbox Series X-tölvur. Hann kostar um tíu þúsund krónur eða áttatíu dali.
Sagt er að það taki um það bil 80 klukkustundir að ljúka aðalsögu leiksins, en í henni er parinu Jason og Luciu fylgt þar sem þau feta sig í gegnum glæpalífið í hinu skáldaða Leonídaríki sem byggt er á Flórída.
Leikurinn hefur einkunnina 99 á Metacritic sem gerir hann að hæst metna tölvuleik allra tíma og hlaut tilnefningu sem leikur ársins á The Game Awards sem fara fram nú í desember.
„Það er með gríðarlegu þakklæti sem við hefjum nýjan kafla hjá Rockstar Games með útgáfu Grand Theft Auto VI sagði. Viðbrögð spilara um allan heim hafa snortið okkur djúpt og við gætum ekki verið spenntari að deila þessari stund með ykkur,“ er haft eftir Sam Houser, forseta og stofnanda Rockstar Games í Vanity Fair.