Snorri Helgason heldur tónleika á Fantasíu á morgun, laugardaginn 21. nóvember. Hann verður þar ásamt hljómsveit sinni, Snákunum, en þessi hópur hefur ekki komið saman síðan á útgáfutónleikunum fyrir plötu Snorra, Borgartún, fyrir um ári.
Snorri hélt útgáfutónleika daginn eftir andlát föður síns: „Þetta var bara besti staður sem ég gat verið á“