Allt tiltækt slökkvilið var kallað út vegna eldsvoða í Nytjamarkaði ABC barnahjálpar við Smiðjuveg 2 um klukkan tvö aðfaranótt sjötta nóvember. Engan sakaði í eldinum en húsnæðið varð fyrir talsverðu tjóni.
Nytjamarkaðurinn er ein helsta fjáröflunarleið ABC barnahjálpar sem styður börn í Kenýa, Pakistan, Bangladess, Búrkína Fasó, Úganda og Filippseyjum.
Nytjamarkaðurinn opnar í fyrsta sinn í nýju húsnæði á hádegi á morgun, laugardag.
„Takk kærlega fyrir alla hjálpina, hlýju kveðjurnar og stuðninginn eftir brunann á Smiðjuvegi. Það hefur svo sannarlega skipt okkur máli,“ segir í færslu frá markaðinum á samfélagsmiðlum.