Úgáfa tölvuleiksins Grand Theft Auto VI er sú stærsta í sögu afþreyingariðnaðarins. Þetta segja forsvarsmenn Rockstar Games, sem framleiðir leikinn. Tekjur af leiknum námu tæplega fjórum milljörðum bandaríkjadala fyrsta sólarhringinn. Það er nærri fimmfalt meira en þegar síðasta útgáfa leiksins, GTA V, kom út, fyrir 13 árum.
Samkvæmt Rocksar Games seldust rúmlega þrjátíu og tvö milljón eintök af GTA VI í forsölu, sem fyrirtækið segir að sé einnig met.
Sam Houser, forstjóri Rockstar Games, sagðist þakklátur fyrir viðtökurnar sem leikurinn hefur fengið meðal tölvuleikjaspilara um allan heim. Gagnrýnendur hafa einnig lofað leikinn í hástert.
Fleiri samfélagsmiðlafærslur en vegna HM
Útgáfa leiksins hefur getið af sér fleiri samfélagsmiðlafærslur en heimsmeistaramót karla í fótbolta í sumar samkvæmt Visibrain, sem heldur utan um slíka tölfræði.
Þá hefur leikurinn hlotið átta tilnefningar til hinna árlegu tölvuleikjaverðlauna Game Awards. Þar á meðal eru tilnefningar í flokkunum leikur ársins, besta listræna stjórn og besta hljóðhönnun. Verðlaunin verða veitt 10. desember.