Í næstu viku rennur út útboðsfrestur á einu stærsta verkefni sem ríkið hefur ráðist í á þessu sviði. Það heitir Stafræn heilsa og miðar að því að innleiða stafrænar lausnir í heilbrigðisgeiranum og ná fram hagræðingu.
Sigurður Þórarinsson, forstöðumaður Stafrænnar heilsu, segir markmiðið að auka þjónustu við sjúklinga og gera gögn aðgengilegri bæði sjúklingum og heilbrigðisstarfsfólki. Þá eigi Stafræn heilsa að koma í veg fyrir að sjúklingar þurfi að margsegja sögu sína og að heilbrigðisstarfsfólk setji inn sömu gögnin oft.
Stafræn þróun heilbrigðiskerfisins hafi verið dreifð á margar stofnanir, sem hafi leitt til tvíverknaðar, hærri kostnaðar og kerfin deili ekki alltaf upplýsingum sín á milli.
Sigurður segir að gervigreind muni koma að miklu gagni við verkefnið.
„Öryggi sjúklinga og sjúkraskrárgagna eru alltaf í fyrirrúmi en þetta er tól sem við getum notað og er verið að nota til að ná fram mikilli hagræðingu.“
Starfsmenn Stafrænnar heilsu eru nú um 65 talsins en þeim mun fjölga mikið á næstunni í tengslum við verkefnið.
„Við erum ekki að ráða mikið af nýju fólki inn heldur fyrst og fremst að flytja fólk til frá öðrum stofnunum.“
„Til að við getum keypt svona þjónustu þurfum við að fara af stað með okkar eigið útboð sem við erum með í gangi og þar erum við að leita til sérfræðinga í geiranum á Íslandi og erlendis að koma í þessa vegferð með okkur,“ segir Sigurður.
Taktu þátt í byltingunni
Útboðið hefur vakið viðbrögð hjá þeim sem gæta hagsmuna fyrirtækja á einkamarkaði.
Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins, segir ríkið í samkeppni við einkamarkaðinn um sérhæft starfsfólk.
„Innkaupastefna ríkisins á frekar að okkar mati að ýta undir verðmætasköpun í atvinnulífinu en ekki veikja hana,“ segir Erla.
Í vikunni setti starfsmaður Stafrænnar heilsu, sem heyrir undir heilbrigðisráðuneytið, færslu inn í hópinn Forritarar á Íslandi á Facebook. Þar eru forritarar hvattir til að taka þátt í útboðinu og bent á að einn eða tveir öflugir einstaklingar geti með aðstoð gervigreindar gert það sem stór teymi á vegum fyrirtækja skiluðu áður. Að taka þátt í aukavinnu fyrir ríkið hafi aldrei verið auðveldara. Færslunni, sem endar á orðunum „taktu þátt í byltingunni“, hefur nú verið eytt.
Sigurður vill ekki tjá sig um efni færslunnar. Hann segir markmiðið með útboðinu að búa til breiðan hóp sérfræðinga sem geti komið að Stafrænni heilsu.
Umræðan endurspeglar ekki það sem er í húfi
Aðferðafræði og skilmálar útboðsins hafa strokið stjórnendum hugbúnaðarfyrirtækja og Samtökum iðnaðarins, sem gæta hagsmuna þeirra, andhæris. Þeim líst illa á að forritarar sem starfi hjá fyrirtækjum vinni fyrir ríkið í aukavinnu. Þeir geti þannig verið í gerviverktöku fyrir ríkið og í beinni samkeppni við fyrirtækin.
Erla segir ummælin í Facebook færslunni óheppileg.
„Heilbrigðiskerfið okkar er einn af okkar mikilvægustu innviðum. Þar fara um okkar mikilvægustu og viðkvæmustu gögn. Utan um þessi gögn er hugbúnaður og hann skiptir sköpum fyrir öryggi sjúklinga og skilvirkni kerfisins. Og þess vegna finnst okkur umræða síðustu daga ekki endurspegla hvað raunverulega er í húfi“
Hún segir samtök Iðanarins styðja að fleirum sé hleypt að opinberum verkefnum, bæði smáum fyrirtækjum og sprotafyrirtækjum. Það skipti þó máli hvernig ríkið kaupir lausnir og þjónustu og að vanda þurfi til verka.
„Með tilkomu gervigreindar eru aðilar sem geta forritað mun hraðar en ella og það er bara gott og blessað en í heilbrigðisþjónustu snýr þetta miklu meira en bara að kóðanum sjálfum. Þetta eru ýmis öryggissjónarmið, prófanir, viðhald, ábyrg innleiðing og annað slíkt þannig að það er bara mjög mikilvægt að það sé vandað til verka.“