Hann sagðist ekki endilega ætla sér að innlima Úkraínu. Þess í stað væri hann að tala um sameiningu í víðum skilningi, eins og það er orðað í grein RIA-fréttaveitunnar, sem er í eigu rússneska ríkisins.
„Það sem ég vil segja er: Komið yfir til okkar, því það er okkar sameiginlega hlið. Komið yfir á sameiginlegu hliðina, réttu megin sögunnar.“
Þá sagði forsetinn að hann vildi að úkraínska þjóðin heyrði það sem hann segði:
„Sama hvað gerist, sama hvaða hörmungar eiga sér nú stað, þá verðum við að huga að framtíðinni, að framtíð barna okkar, og gera okkur grein fyrir því að ef við viljum vera sterk, áhrifamikil og búa við skilyrði fyrir jákvæða þróun verðum við að sjálfsögðu að standa saman. Þannig verðum við að sameina krafta okkar til að ná sameiginlegum markmiðum.“
Pútín lét þessi orð falla í nýrri heimildarmynd sem sýnd er í Rússlandi.
Þar sagði hann einnig að hnignun Úkraínu væri ekki vegna árása Rússa, sem hafa verið að ráðast á landið frá árinu 2014 þegar þeir studdu aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins og hernámu og innlimuðu ólöglega Krímskaga.
Þess í stað væri þessi hnignun til komin vegna þess að þjóðernissinnar hefðu komist til valda í Kænugarði, í stað föðurlandsvina, og þeir hefðu valdið því að Úkraína væri að hruni komin.
„Föðurlandsást er annars eðlis en þjóðernishyggja, eins og við vitum, föðurlandsvinir elska land sitt en þjóðernissinnar hata annað fólk. Það er munurinn. En hatur á öðru fólki kemur þér ekki langt.“
Pútín hélt því einnig fram að þeir sem styddu Úkraínumenn í baráttunni gegn innrás Rússa gerðu það í eigin hag. Markmið þeirra væri yfirráð yfir Úkraínu.
Þetta sagði Pútín að andstæðingar Rússlands hefðu alltaf gert. Það er að reyna að sundra Rússlandi og drottna yfir rússnesku þjóðinni.
Ein þjóð, samkvæmt Pútín
Pútín hefur í gegnum árin orðið tíðrætt um sögu Rússlands og slavneska fólksins og hefur notað þá sögu til að reyna að réttlæta innrásina í Úkraínu. Í síðasta mánuði hélt forsetinn því fram að nýleg genarannsókn sannaði að Rússar og Úkraínumenn væru sama þjóðin, sem hann hefur einnig haldið fram lengi.
Þetta skrifaði hann meðal annars í langa grein sem hann birti árið 2021 sem fjallaði um það að rússneska þjóðin og sú úkraínska væru í raun ein þjóð. Á þeim tíma var hann byrjaður að raða hersveitum sínum við landamæri Úkraínu.
Þá hefur Pútín talað um að rússneskir hermenn væru ekki að leggja undir sig land í Úkraínu. Þeir væru eingöngu að endurheimta land sem þeir ættu fyrir.
Sjá einnig: „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“
Á sama tíma og hann virðist krefjast yfirráða yfir allri Austur-Evrópu hefur Pútín einnig haldið því fram að Rússland sé fórnarlamb árása Vesturlanda og Atlantshafsbandalagsins og að það sé þeim að kenna en ekki honum að innrásin í Úkraínu hafi verið gerð.
Segist hafa þurft að koma fólki til bjargar
Pútín hefur einnig ítrekað haldið því fram að stríðið hafi verið nauðsynlegt til að bjarga rússneskumælandi fólki í austurhluta Úkraínu. Hann hefur haldið því fram að Úkraínumenn hafi verið að fremja þjóðarmorð á þessu fólki.
Sjá einnig: Segir barist fyrir tilvist Rússlands
Frá því að átökin hófust þann 14. apríl 2014, þegar aðskilnaðarsinnar gerðu uppreisn í þessum hluta landsins, með stuðningi Rússa, til 31. desember 2021 féllu 3.404 óbreyttir borgarar í austurhluta Úkraínu, samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna. Langflestir þeirra féllu á árunum 2014 og 2015, þegar átökin voru hvað umfangsmest og eru 298 manns sem voru um borð í MH17, flugvél Malaysian Airlines, sem aðskilnaðarsinnar skutu niður með rússnesku loftvarnarkerfi, taldir með.
Sjá einnig: Pútín hafi ákveðið að senda eldflaugina sem notuð var gegn MH17
Árið 2014 dóu 2084 óbreyttir borgarar, samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna, og árið 2015 dóu 955. Síðustu þrjú árin fyrir innrás Rússa, sem hófst í febrúar 2022, dóu einungis 78 óbreyttir borgarar, 27 árið 2019, 26 árið 2020 og 25 árið 2021.
Sameinuðu þjóðirnar hafa aldrei sagt að þetta fólk hafi allt fallið í árásum Úkraínumanna eins og Rússar hafa haldið fram. Síðustu árin dóu flestir vegna jarðsprengja eða annarra ósprunginna sprengja.
Í tölum Sameinuðu þjóðanna segir að séu bæði úkraínskir hermenn og úkraínskir aðskilnaðarsinnar taldir með, hafi 14.200 til 14.400 manns fallið í átökunum, frá apríl 2014 til loka árs 2021.
Ítrekað sakaðir um ódæði
Þar sem rússneskir hermenn hafa stigið niður fæti í Úkraínu hafa þeir ítrekað verið sakaðir um að skilja eftir sig blóðuga slóð. Þeir hafa verið sakaðir um grimmilega stríðsglæpi gegn óbreyttum borgurum í Úkraínu, gegn úkraínskum hermönnum og gegn öðrum.
Sjá einnig: Stjaksettu höfuð úkraínsks hermanns
Rússar gera ítrekað dróna- og eldflaugaárásir á borgaraleg skotmörk víðsvegar í Úkraínu og rússneskir hermenn hafa gert sér að leik að varpa sprengjum úr drónum á óbreytta borgara í úkraínskum borgum og birta myndbönd af þeim árásum í fjáröflunarskyni.
Sjá einnig: „Veiddu“ grænmetissala með dróna
Rússneskir hermenn hafa þar að auki ítrekað tekið upp myndbönd af aftökum sínum á úkraínskum stríðsföngum og birt þau á netinu. Úkraínumenn hafa einnig fangað slíkar aftökur með drónum.
Sjá einnig: Mikil fjölgun í aftökum Rússa á stríðsföngum
Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) gaf á dögunum út skýrslu um kynferðislegt ofbeldi í stríðinu í Úkraínu. Þar kom fram að rannsakendur stofnunarinnar hefðu staðfest að minnsta kosti 1.004 kynferðisbrot í stríðinu og að 89 prósent þeirra hefðu verið framin af Rússum.
Sjá einnig: Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi
Í skýrslunni kom einnig fram að elsta fórnarlamb rússneskra hermanna, sem vitað er um, var 82 ára gömul kona. Yngsta fórnarlambið var fjögurra ára gamalt.