Ein af hverjum fjórum konum í heiminum hefur ekki kost á því að neita mökum sínum um samþykki, krefjist þeir kynlífs. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. The Guardian greinir frá.
Verst er ástandið í Vestur- og Mið-Afríku þar sem nærri helmingur (45%) kvenna getur ekki neitað eiginmönnum sínum um kynlíf. Um þriðjungur kvenna í Austur- og Suður-Afríku og í Arabaríkjum er í sömu stöðu. Í Suður-Ameríku og á eyjum Karíbahafs er hlutfallið 10%.
Þá eru yngri konur, 15 til 19 ára, í verri stöðu en eldri konur, 45 til 49 ára. Niðurstöðurnar eru í samræmi við rannsóknir sem sýnt hafa að unglingsstúlkur þurfi að þola mikið ofbeldi í nánum samböndum.
Jean-Paul Murunga, lögfræðingur hjá mannréttindasamtökunum Equality Now, segir tölfræðina afar sorglega, ekki síst í ljósi þess að Afríka í heild sinni tók upp Maputo-bókunina árið 2003. Hún á að tryggja konum lagaleg jöfn réttindi á við karla og binda ríki til að vernda konur gegn ofbeldi.
Hann segir ákvæði bókunarinnar skýr. Hjónaband skapi ekki óendanlegt samþykki né gefi það í skyn.
Samkvæmt skýrslu Muranga frá 2024 telst nauðgun í hjónabandi ekki glæpur í sumum ríkjum Afríku. Sjö ríki taka sérstaklega fram að eiginmenn séu undanskildir saksókn vegna nauðgunar í hjónabandi. Þar á meðal eru Fílabeinsströndin, Eþíópía og Suður Súdan. Í öðrum löndum er nauðgun í hjónabandi aðeins glæpur ef parið býr ekki saman.
Nauðgun í hjónabandi ekki til sem hugtak
Lögin í þessum ríkjum grundvallast á þeim misskilningi að hugtakið nauðgun í hjónabandi sé ekki til. Víða spila trúarbrögð stórt hlutverk í að halda þessari trú á lífi.
Alimato Dimonekene, stofnandi samtakanna A Girl At A Time sem styðja ungar stúlkur í Sierra Leone, sagði umræðu um samþykki í hjónabandi ekki enn hafna. „Konur munu aldrei kalla það nauðgun. Þær búa til afsakanir eða skella skuldinni jafnvel á sjálfar sig,“ sagði hún í viðtali við The Guardian.
„Í Vestur-Afríku er litið á kynlíf sem skyldu í hjónabandi. Þú verður að gera hvað sem eiginmaðurinn þinn biður um.
„Þegar hann hefur greitt brúðarverð á hann þig og þú getur ekki neitað kröfum hans. Hann fær allt sem hann vill, þar á meðal þegar kemur að nánd, fjármálum og uppeldi barna.“