Fyrirtækið Storð ehf. hefur um nokkurt skeið unnið að endurgerð hússins. Samkvæmt tilkynningunni hefur það gengið í gegnum umfangsmiklar breytingar og engu verið til sparað við að endurheimta reisn þess.
Á sama tíma hefur hópur fólks mótað starfsemi hússins sem vettvang fyrir listhandverksfólk og hönnuði. Þar eiga að vera vinnustofur, verslun og fjölnota rými sem nýtast starfi listamanna og menningarstarfsemi borgarinnar.
Hugmyndin er að vinnustofur verði í gömlu fangaklefunum, sem allir hafa verið uppfærðir til að gegna þessu nýju hlutverki. Verslun og sýningarrými verða í rýmri vistarverum hússins.
Elsta fangelsi landsins
Hegningarhúsið var reist úr hraungrýti árið 1872 eftir teikningum C. Klentz byggingarmeistara og var elsta fangelsi landsins. Þar voru upphaflega sextán fangaklefar.
Húsið var þó ekki eingöngu fangelsi. Þar voru frá upphafi einnig réttarsalir og sátu þar bæjarþing Reykjavíkur og Landsyfirréttur, síðar Hæstiréttur. Skrifstofur Hæstaréttar voru á efri hæð hússins fram undir lok fimmta áratugar síðustu aldar og borgarstjórn Reykjavíkur hélt þar fundi áratugum saman. Einnig var kennt í húsinu. Meðal annars rak séra Friðrik skóla þar og Iðnskólinn var þar um tíma.
Húsið var friðað 18. ágúst 1978. Friðunin nær til ytra byrðis þess og hluta innra rýmis, meðal annars anddyris og stigahúss. Fangelsið var starfrækt til 1. júní 2016, síðast sem móttökufangelsi, og var þá elsta fangelsi landsins enn í notkun. Síðast var strokið úr því árið 1993, þegar þrír fangar söguðu í sundur rimil í glugga á baðherbergi. Þeir náðust fljótt.
Ytra byrði hússins var gert upp árið 2021 á vegum Minjaverndar.
Opinn kynningarfundur á mánudag
Mánudaginn 23. nóvember klukkan 16:30 verður haldinn opinn kynningarfundur í Grósku fyrir áhugasama leigjendur. Þar verður farið yfir hugmyndina, þar á meðal rekstrarfyrirkomulag, leigu og aðbúnað í vinnustofunum, fyrirkomulag verslunar og sýningarrýma og möguleika á samstarfi listhandverksfólks.
Fimmtudaginn 26. nóvember gefst áhugasömum umsækjendum tækifæri til að skoða Hegningarhúsið milli klukkan 15:00 og 17:00.