Snorri Másson, þingmaður og varaformaður Miðflokksins, sakar Rögnu Sigurðardóttur, þingmann Samfylkingarinnar, um virðingarleysi í umræðu um fæðingarorlof. Þetta kemur fram í færslu Snorra á X síðdegis í dag, þar sem hann vitnar í ræðu Rögnu á Alþingi í gær, þriðjudag.
Ragna mælti fyrir fyrirspurn til félags- og húsnæðismálaráðherra um nýtingu feðra á fæðingarorlofi. Hún sagði fæðingarorlofstöku feðra hafa verið sér hugleikna, ekki síst vegna umræðu sem hún tengdi við ákveðinn hóp ungs fólks.
„Mér hefur undanfarið verið hugleikin fæðingarorlofstaka feðra, ekki síst vegna umræðunnar og orðræðu ákveðins hóps ungs fólks sem margt hvert hefur ekki upplifað það að ganga með og eignast barn og sinna umönnun þess. Sú orðræða þykir mér hafa að einhverju leyti einkennst af afturhvarfi til fortíðar án þess þó að fólk átti sig á því að barist hefur verið fyrir þeim réttindum sem við búum við í dag,“ sagði Ragna.
„Er þetta bara eitthvert rugl í einhverju barnlausu liði?“
Snorri vitnaði í þessi orð á X. Hann sagði Rögnu hafa lýst óskum foreldra um aukið frelsi til að skipuleggja uppeldi barna sinna með þessum hætti og sagðist furða sig á nálgun þingmannsins.
„Í fyrsta lagi er það virðingarleysið í orðum þingmannsins, að afgreiða með þessum hætti ósköp eðlilegar óskir foreldra úr öllum áttum í samfélaginu um aukið frelsi til að skipuleggja uppeldi barna sinna. Er þetta bara eitthvert rugl í einhverju barnlausu liði sem veit ekki neitt? Eða hvernig á maður að skilja orð þingmannsins?“ skrifaði Snorri.
Hann sagði jafnframt að um afbökun á grundvallarhugtökum væri að ræða. „Er það „afturhvarf“ að foreldrar óski eftir því að hið opinbera gæti sín að koma ekki í veg fyrir að þeir geti nýtt réttindi sín, þessi sem hefur verið svona ötullega „barist fyrir“ eins og þingmaðurinn segir?“
Að undanförnu hefur borið nokkuð á kröfu foreldra um að fá meira um það að segja hvernig þeir skipta með sér hinu lögbundna tólf mánaða fæðingarorlofi. Miðflokkurinn hefur lagt til að foreldrar fái sjálfir að skipta tólf mánuðunum sín á milli eins og þeir kjósa, en eins og staðan er núna fær hvort foreldri sex mánuði og má aðeins færa sex vikur til hins.
Það þýðir í flestum tilvikum að móðirin fær sjö og hálfan mánuð en faðirinn getur þá tekið fjóra og hálfan. Á síðustu árum hafa hins vegar aðeins um 40% feðra fullnýtt sinn rétt og það geta verið ýmsar ástæður fyrir því. Í þeim tilvikum má móðirin þó ekki nota þann hluta orlofsins. Oft fellur hann því einfaldlega niður, eins og nú er að færast í aukana.
Margir eru óánægðir með þetta og maður hefði vonað að ríkisstjórnin myndi hlusta á þær raddir og sjá hvaða leiðir væru til úrbóta, þótt ekki væri nema eilítið aukinn tími sem mætti framselja til móðurinnar í svona tilvikum.
En því er ekki að heilsa. Í gær steig Ragna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, í ræðustól og lýsti þessum óskum foreldra sem „orðræðu ákveðins hóps ungs fólks sem margt hvert hefur ekki upplifað það að ganga með og eignast barn og sinna umönnun þess. Sú orðræða þykir mér hafa að einhverju leyti einkennst af afturhvarfi til fortíðar án þess þó að fólk átti sig á því að barist hefur verið fyrir þeim réttindum sem við búum við í dag.“
Ég furðaði mig aðeins á þessari nálgun. Í fyrsta lagi er það virðingarleysið í orðum þingmannsins, að afgreiða með þessum hætti ósköp eðlilegar óskir foreldra úr öllum áttum í samfélaginu um aukið frelsi til að skipuleggja uppeldi barna sinna. Er þetta bara eitthvert rugl í einhverju barnlausu liði sem veit ekki neitt? Eða hvernig á maður að skilja orð þingmannsins?
Í öðru lagi er það þessi fullkomna afbökun á grundvallarhugtökum. Er það „afturhvarf“ að foreldrar óski eftir því að hið opinbera gæti sín að koma ekki í veg fyrir að þeir geti nýtt réttindi sín, þessi sem hefur verið svona ötullega „barist fyrir“ eins og þingmaðurinn segir?
Ég hélt því þvert á móti fram í minni ræðu að eina afturhvarfið á þessu sviði væri sú meðvitaða ákvörðun þessarar ríkisstjórnar að halda áfram að skerða fæðingarorlof foreldra. Forræðishyggjan vegur þar þyngra en tími foreldra með litlum börnum sínum.
Skilaboðin eru í takt við annað sem frá þessari ríkisstjórn kemur; með nýju fjárlagafrumvarpi liggur fyrir að hvergi annars staðar á Norðurlöndum eru álögur hærri á millitekjufjölskyldur með börn, um 41% af heildarlaunakostnaði, á sama tíma og stuðningur við fjölskyldur er hvergi minni en hér á Íslandi. Allt ber þetta að sama brunni.
— Snorri Másson (@5norri) November 18, 2026
Sex vikur má færa á milli
Samkvæmt gildandi lögum er fæðingarorlof tólf mánuðir, sex mánuðir á hvort foreldri. Sex vikur af þeim tíma má framselja til hins foreldrisins. Það þýðir, eins og Snorri rakti, að í flestum tilvikum getur móðirin tekið sjö og hálfan mánuð og faðirinn fjóra og hálfan. Miðflokkurinn hefur lagt til að foreldrar fái sjálfir að skipta tólf mánuðunum eins og þeir kjósa.
Snorri tók til máls í sömu umræðu og Ragna í gær og sagði að réttur foreldra væri skertur í núverandi fyrirkomulagi, þar sem fæstir gætu fullnýtt orlofið. Hann kallaði þetta afturhvarf.
„Þetta er afturhvarf frá því að við njótum réttar til tólf mánaða fæðingarorlofs en ekki eitthvert óljóst afturhvarf sem hv. þingmaður Samfylkingarinnar talar um að felist í ósk foreldra um að fá fullt fæðingarorlof,“ sagði Snorri á þingi. „Það er kostulegt.“
Í færslunni í dag endurtekur hann þessa afstöðu og segir eina afturhvarfið felast í „meðvitaðri ákvörðun þessarar ríkisstjórnar að halda áfram að skerða fæðingarorlof foreldra“. Hann bætir við að forræðishyggjan vegi þar þyngra en tími foreldra með litlum börnum.
Snorri segir að á síðustu árum hafi aðeins um 40% feðra fullnýtt rétt sinn og að sá hluti orlofsins sem ekki er tekinn falli niður, þar sem móðirin megi ekki nota hann. Ragna mótmælti því í síðari ræðu sinni í gær að fæstir gætu fullnýtt orlofið. Hún vísaði til skýrslu Fæðingarorlofssjóðs og sagði að nýting daga, meðalfjöldi daga sem nýttir eru, væri í takt við óframseljanlegan rétt, bæði hjá feðrum og mæðrum.
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, sagði í svari við fyrirspurn Rögnu að meðalnýting feðra hefði aukist samhliða lengingu á óframseljanlegum rétti þeirra og haldist um 130 dagar frá árinu 2021. Hann sagði ekki verða séð af fyrirliggjandi tölum að dregið hefði úr fæðingarorlofstöku feðra undanfarin ár. Ráðherrann boðaði jafnframt að hann myndi brátt setja af stað vinnuhóp um breytingar á fæðingarorlofskerfinu.
Snorri hefur áður gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir að leyfa foreldrum ekki að skipta fæðingarorlofinu frjálst á milli sín. Í febrúar sagði hann þá ákvörðun byggða á hugmyndafræðilegum forsendum fremur en hagsmunum barnafjölskyldna.
Hvetur Samfylkinguna til að taka sér frí frá málefnum barnafjölskyldna