Úkraínuher gerði aðra árás á Krím-brúna í kvöld. Sergei Aksyonov, rússneskur héraðsstjóri Krímskaga sem skipaður er af stjórnvöldum í Moskvu, greindi frá árásinni í færslu á Telegram í kvöld.
Aksyonov segir að umferð um brúna hafi verið stöðvuð tímabundið en viðbragðsaðilar séu á vettvangi og unnið sé að því að meta tjónið.
Úkraínuher gerði árás á brúna fyrir tveimur dögum sem olli nokkru tjóni á brúnni. Brúin er eina vegatengingin milli Rússlands og Krímskaga yfir Kerch-sund og mikilvæg samgönguæð fyrir Rússa. Vladimír Pútín Rússlandsforseti setti framkvæmd brúarinnar á hæsta forgang þegar Rússar innlimuðu Krímskaga árið 2014.