Á síðasta ári var lagt hald á hátt í fjóra lítra af svokölluðum nýmynduðum kannabínóíðum, eða Spice eins og það er oftast kallað. Efnið svipað til kannabis en getur verið mun sterkara auk þess sem styrkleikinn er á huldu.
Haldlagt magn margfaldaðist á milli ára og sömu sögu er að segja af öðrum efnum sem falla undir flokk svokallaðra nýgeðvirkra efna, segir Vignir Örn Oddgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.