Danmörk og fjögur önnur Evrópuríki ætla að senda fólk sem hefur fengið synjun um alþjóðlega vernd til Rúanda í Afríku strax á næsta ári. Þetta var tilkynnt eftir fundarhöld í Austurríki í dag.
Spurst hafði út að tíðinda væri að vænta í heimsókn Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, til Austurríkis. Það fékkst staðfest á fundi með fréttamönnum síðdegis.
„Austurríki, Danmörk, Holland, Þýskaland og Grikkland ætla í sameiningu að opna fyrstu brottvísunarstöðina í Rúanda árið 2027,“ tilkynnti Christian Stocke, kanslari Austurríkis.
Þetta hafði legið í loftinu síðan í sumar þegar Evrópuþingið samþykkti ný lög sem heimila aðildarríkjum að reisa brottvísunarstöðvar utan ESB.
„Við þurfum að endurheimta stjórn á landamærunum okkar og í dag, eins og allir vita, þéna glæpasamtök milljarða evra á mansali og of margt fólk týnir lífi á hafi úti,“ sagði Frederiksen.
Á fundinum í Vín í dag var líka Vincent Biruta innanríkisráðherra Rúanda. Hann segir þjóð sína þekkja vel hvernig er að neyðast til að leggja á flótta.
„Þeim sem við tökum við í Rúanda verður boðið að snúa aftur til upprunalands af frjálsum vilja, að aðlagast þjóðfélaginu í Rúanda eða flytja til annars lands að eigin vali þar sem þau eiga lagalegan rétt á að búa,“ sagði Biruta í Vín í dag.
Væntir þess að fleiri bætist í hópinn
Rúanda er lítið og landlukt land í Mið-Afríku. Það á landamæri að Úganda, Búrúndí, Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og Tansaníu. Þar búa 14-15 milljónir en að flatarmáli er landið um það bil fjórum sinnum minna en Ísland.
Þegar Boris Johnson var við völd í Bretlandi gerðu stjórnvöld þar svipað samkomulag við Rúanda en Keir Starmer hætti við það þegar hann tók við. Þá bygging undirbúin, sem kallast Hope hostel, til að taka á móti fólkinu. Hún er tóm og gæti því orðið viðkomustaður fyrsta hópsins sem á að senda til Rúanda strax á næsta ári.
Fyrst um sinn á að senda þangað fólk sem hefur fengið synjun um alþjóðlega vernd. Frederiksen telur þetta fyrirkomulag hafa fælingarmátt og væntir þess að fleiri ríki bætist í hópinn.
Þetta er þó alls ekki óumdeilt. Mannréttindasamtök hafa áhyggjur af að ekki verði hægt að tryggja mannréttindi og önnur grundvallarréttindi fólks. „Það er mikil vanvirðing fólgin í að halda að Afríka eigi að vera ruslahaugur fyrir hælisleitendur frá öðrum ríkjum,“ segir David Muthama mannréttindalögfræðingur hjá.