Viðskiptavinir stórra banka í Bandaríkjunum, þar á meðal Bank of America, JP Morgan Chase og Wells Fargo, hafa tilkynnt vandamál með þjónustu bankanna.
Um 4.500 manns hafa tilkynnt truflanir á þjónustu netbanka Chase, dótturfyrirtækis JP Morgan Chase, samkvæmt síðunni Downdetector sem fylgist með hvort ýmis þjónusta liggi niðri út frá tilkynningum notenda.
Í frétt BBC segir að bankinn eigi við villu í hugbúnaði að etja. Villan er ekki talin tengjast netöryggi. Í tilkynningu segir bankinn að sumar millifærslur taki lengri tíma en vanalega en að viðskiptavinir hafi enn aðgang að reikningum og sjóðum.
Einn viðskiptavinur í Texas sagði við CBC að hann gæti ekki tekið út ávísun í útibúi bankans í Dallas. Gjaldkeri hafi sagt honum að „kerfið lægi niðri“ og gæti ekki veitt frekari upplýsingar um truflunina.
Í tilkynningu á X segir bankinn að villan gæti haft keðjuverkandi áhrif á aðra banka.
„Þar sem við komum að millifærslum við aðra banka gætu þeir bankar einnig hafa orðið fyrir áhrifum en þetta er ekki kerfislægt vandamál,“ segir í tilkynningunni.