Þegar Baland Jalal var ungur maður í Kaupmannahöfn varð hann fyrir upplifun sem hann gleymir seint. Hann lá í rúminu sínu þegar honum fannst draugur vera kominn til að drepa sig. Óttinn var yfirþyrmandi og það sem gerðist virtist svo raunverulegt að hann ákvað að komast að því hvað hefði átt sér stað.Í dag er Jalal taugavísindamaður við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum og hefur helgað stóran hluta starfsævinnar rannsóknum á þessu óhugnanlega fyrirbæri.
Óhugnanlegt fyrirbæri sem milljónir hafa upplifað – „Þetta virðist svo raunverulegt“