Bandaríski réttarlæknirinn Michael Freeman telur að bandaríski kynferðisbrotamaðurinn Jeffrey Epstein hafi ekki svipt sig lífi heldur hafi hann verið myrtur í fangaklefa sínum. Epstein lést þann 10. ágúst árið 2019. Þá beið hann réttarhalda en hann var ákærður fyrir að hafa staðið að mansali á ólögráða stúlkum í kynferðislegum tilgangi.
Freeman segir krufningarskýrslu Epsteins varpa ljósi á þau átök sem áttu sér stað í fangaklefanum. Þá bendi allt til þess að Epstein hafi orðið fyrir árás áður en hann lést. Freeman greinir frá þessum niðurstöðum sínum í þættinum Newsnight á BBC.
Á meðal þeirra áverka sem greint er frá í krufningarskýrslu Epsteins er djúp blæðing í vinstri öxl, mögulegir höggáverkar í andliti og för á hálsi hans sem telja má að séu eftir neglur.
Freeman telur að förin bendi til þess að Epstein hafi reynt að losa um snöru sem þrengt var á hálsi hans. Þá telur hann líklegast að Epstein hafi verið kyrktur og lík hans svo hengt upp með sömu snöru í koju hans í fangaklefanum.
„Áverkarnir og það hvernig líkið fannst bera ekki saman. Þá er aðeins ein skýring eftir, að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti,“ sagði Freeman í samtali við BBC.
Stangast á við opinberar niðurstöður
Niðurstöður Freemans stangast á við upprunalegar niðurstöður krufningarinnar frá árinu 2019. Í þeirri krufningarskýrslu var orsök andláts Epsteins sú að hann hefði fyrirfarið sér. Barbara Sampson, sem var yfirlæknir réttarmeinafræðideildar New York, hefur statt og stöðugt staðið við þá niðurstöðu. Þá fundust ekki varnaráverkar af því tagi sem búast mætti við hafi Epstein verið kyrktur af öðrum.
Freeman skoðaði ekki lík Epsteins sjálfur heldur byggði hann niðurstöður sínar einungis á fyrirliggjandi gögnum úr krufningarskýrslunni. Hann segist hafa unnið rannsóknina sjálfstætt og ekki hafi hann þegið greiðslu frá bróður Epstein sem hefur lengi haldið því fram að bróðir hans hafi verið myrtur.