Rætt er við réttarlækninn Michael Freeman í fréttaþættinum BBC Newsnight í kvöld. Þar segist Freeman hafa farið yfir gögn réttarlæknis New York-borgar frá 2019 en réttarlæknirinn komst að þeirri niðurstöðu að áverkar á líki Epstein bentu til þess að hann hafi framið sjálfsvíg. Milljarðamæringurinn fannst látinn í fangaklefa sínum í New York þann 10. ágúst árið 2019 þar sem hann beið réttarhalda vegna ákæru vegna mansals.
Athugið að í þessari frétt er að finna grafískar lýsingar. Lesendur eru varaðir við.
Segir í umfjöllun BBC að Freeman hafi starfað sem réttarmeinafræðingur fyrir ríkissaksóknara í Bandaríkjunum meðal annars í Minnesota. Hann hafi fengið gögn um málið í hendurnar frá Mark Epstein bróður milljarðamæringsins sem alla tíð hefur haldið því fram að bróðir hans hafi verið myrtur. Freeman hafi ekki séð líkið með eigin augum en byggt rannsókn sína á gögnum og ljósmyndum úr skýrslu réttarlæknis. Hann segir rannsókn sína óháða og að hann hafi ekki fengið greitt fyrir hana.
Horfa má á viðtalið við Freeman í heild sinni hér fyrir neðan.
BBC hefur eftir honum að hann telji merki um að ráðist hafi verið á Epstein, hann hafi séð merki um djúpa blæðingu í vinstri öxl og áverka sem að hans sögn virðast samrýmast því að hann hafi verið sleginn í andlitið. Sönnunargögnin bendi til þess að naglaför væru fyrir ofan snörufar á hálsi Epsteins, sem að sögn Freeman samrýmist líklega kyrkingu aftan frá og tilraun fórnarlambsins til þess að losa snöruna af hálsinum. Snaran hafi líklega svo verið notuð til að hengja lík milljarðamæringsins upp.
Tekið er fram í umfjöllun BBC að réttarlæknirinn sem framkvæmt hafi rannsóknina á sínum tíma hafi ætíð haldið sig við sömu útskýringu, að allt benti til þess að um sjálfsvíg væri að ræða. Engin merki væri um varnaráverka á líkinu líkt og sjáist hjá fórnarlömbum kyrkinga. BBC segir að Freeman furði sig á því að engin mynd hafi verið tekin af líki Epstein þar sem hann hékk í loftinu.
Fram kemur að samkvæmt gögnum frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu hafi fangavörðurinn sem kom að Epstein kallað samstundis á annan samstarfsmann sér til aðstoðar, lagt lík Epstein á gólfið og hafið endurlífungartilraunir. Epstein hafi dagana á undan verið undir sjálfsvígseftirliti.
Freeman segist ekki hafa hugmynd um hver ætti að hafa myrt Epstein ef hans túlkun á sönnunargögnum reyndist rétt. „Ég hef enga skoðun á því. Það er ekki hluti af neinni rannsókn sem ég hef gert.“
Epstein var sakfelldur árið 2008 fyrir að falast eftir vændi af ólögráða einstaklingi og var í kjölfarið skráður sem kynferðisbrotamaður. Hann slapp við þungan fangelsisdóm vegna samnings við saksóknara. Ellefu árum síðar var Epstein ákærður fyrir að reka mansalshring ólögráða stúlkna í kynferðislegum tilgangi. Hann beið réttarhalda árið 2019 þegar hann fannst látinn í fangaklefa sínum í New York.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.1799.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.1799.