Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður norðausturráðs Viðreisnar, segist hafa fyrst frétt af úrsögn Ingvars úr þingflokknum í fréttunum í morgun.
„Auðvitað er þetta sjokk,“ segir Lovísa í samtali við Vísi, „ekki bara af því að nú höfum við ekki þingmann í kjördæminu heldur líka vegna þess að við erum líka góðir vinir.“
Það sé leiðinlegt að sjá á eftir Ingvari en hún kveðst virða ákvörðun hans enda séu þau enn góðir vinir.
Spurð hvort ákvörðunin hafi komið ráðinu á óvart svarar hún: „Það er kannski mismunandi á milli manneskja en ég held að það sé alveg kýrskýrt að kjósendur Viðreisnar í Norðausturkjördæmi kusu ekki Sjálfstæðisflokkinn.“
Vonast eftir „ákveðinni stefnubreytingu“
Flokksráðið fundaði um málið í dag til að ræða næstu skref.
„Við sjáum tækifæri í þessu og við teljum gríðarlega mikilvægt að þetta marki ekki endalok Viðreisnar í Norðausturkjördæmi heldur ákveðna stefnubreytingu,“ segir Lovísa.
Í viðtölum hefur Ingvar vísað til þess að hann hafi meðal ósáttur við mörg mál sem ríkisstjórnin lagði fram, meðal annars breytingar á Loftbrú og að Fjarðarheiðargöng hafi verið slegin út af borðinu í nýrri samgönguáætlun.
Ingvar sagði Viðreisn einnig hafa svikið kjósendur með því að hækka gjöld og skatta og hefur vísað til hækkunar virðisaukaskatts á baðlón, vörugjalda og kílómetragjalds.
Lovísa segir það ekkert leyndarmál að grasrót flokksins í kjördæminu hafi oft þurft að minna ráðamenn Viðreisnar á þær afleiðingar sem ákvarðanataka þeirra kunni að hafa á landsbyggðina.
„Ákveðnar ákvarðanir hafa ekki verið teknar með landsbyggðargleraugum,“ segir hún en tekur fram að þessi ríkisstjórn sé alls ekki sú fyrsta sem hafi tekið slíkar ákvarðanir og að margar ákvarðanir hafi verið teknar til að „taka til“ eftir fyrri ríkisstjórnir.
Engu að síður telur hún að Viðreisn megi leita í frjálslyndar rætur sínar.
„Viðreisn er í raun og veru frjálslyndur flokkur,“ segir Lovísa.
Ræddu við Þorgerði og Daða
Lovísa segir að flokksráðið hafi í dag átt fund með formanni flokksins, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, og varaformanninum Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra.
„Þar vorum við að minna á okkar áherslur og það hefur alltaf verið gríðarlega gott samtal þar,“ segir Lovísa.
Tekur hún fram að margir átti sig gjarnan ekki á stöðu ákveðinna málaflokka á landsbyggðinni nema þeir búi þar og nefnir í því samhengi heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.
„Það renna ekki öll vötn til Reykjavíkur,“ segir hún.
Engu að síður segir hún að flokksforystan hafi ávallt verið móttækileg fyrir áherslumálum ráðsins. „Dagurinn sem ég verð múlbundin út af skoðunum mínum í Viðreisn verður dagurinn sem ég segi mig úr flokknum,“ segir hún.