Sókn í mennta­málum en á­hyggjur af mögu­legum niður­skurði - Vísir

Sókn í mennta­málum en á­hyggjur af mögu­legum niður­skurði - Vísir

Sókn í mennta­málum en á­hyggjur af mögu­legum niður­skurði - Vísir

Fundurinn fór fram í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag en undanfari hans eru tvær tillögur sem samþykktar voru í borgarráði í september. Annars vegar um að leggja fram tillögur sem miða að því að bæta námsárangur í lesskilningi, stærðfræði og vísindalæsi og hins vegar að þessum fundi og að eiga opið og beint samtal við kennara og starfsfólk í leik- og grunnskólum um sókn í menntamálum.

Vísir var með beina útsendingu frá fundinum og var meðal annars rætt við Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar, í upphafi hans en hún á frumkvæði að honum og hefur komið að skipulagningu.

„Þú finnur strauminn hér í salnum en þetta gengur út á að kalla saman hagaðila. Við erum með fullt af flottum kennurum, starfsfólki og stjórnendum í frístundaheimilunum, leikskólunum og grunnskólunum okkar. Við erum líka með foreldra og við í pólitíkinni fáum að taka þátt,“ sagði Björg í viðtali fyrir fundinn.

„Við viljum tala um áskoranir, tækifærin og um lausnirnar því við brennum öll fyrir menntamálum og vitum hvað málaflokkurinn skiptir miklu máli. Orð eru til alls fyrst en ég held að við förum með gott nesti af stað inn í daginn.“

Björg Magnúsdóttir er oddviti Viðreisnar í borginni og átti frumvkæði að fundinum sem haldinn var í ráðhúsinu í dag.Vísir/Einar

Björg viðurkenndi að það væru háleit markmið að koma skóla- og frístundastarfi í borginni í fremstu röð.

„Það gerir enginn neitt einn þegar kemur að svona stóru verkefni. Við lögðum áherslu á gott og öflugt samtal, hvert einasta orð sem verður sagt hér skiptir máli. Starfsfólk frá borginni er á borðunum og við tökum þetta efni fundarins síðan með okkur inn í sóknaráætlun í menntamálum sem við erum að smíða,“ sagði hún en þátttakendum á fundinum var skipt upp í nokkra hópa og ræddu þeir málefni eins og aukinn árangur í læsi, stærðfræði og vísindum, íslensku sem annað mál, snemmtæka íhlutun og starfsþróun svo eitthvað sé nefnt.

Skera niður í miðlægri stjórnsýslu til að eiga pening í verkefnin sem blasi við

Í myndbandi á samfélagsmiðlum, sem birtist í gær, gagnrýndi Sanna Magdalena Mörtudóttir áherslur meirihlutans og sagði að á sama tíma og verið væri að skipuleggja þennan fund stæði fyrir dyrum óútfærð hagræðingarkrafa borgarfulltrúa meirihlutans á skóla- og frístundasvið upp á tæpan milljarð króna.

Þá hafa uppsagnir hjá borginni verið í brennidepli, sem meðal annars hafa beinst að starfsfólki þess sviðs, og Sanna spyr í myndbandinu hvernig eigi að bæta skóla- og frístundastarf með niðurskurði.

„Það er auðvitað mikið að gera á stóru heimili, við erum stærsta sveitarfélag landsins. Það eru rosalega mörg verkefni og á þessum tíma erum við að vinna fjárhagsáætlun og reyna að finna leiðir til að koma okkur inn í ramma, það er ekkert óvenjulegt við það. Það sem meirihlutinn er að gera er að setja skólastarfið í forgang, við erum að setja viðhald í skólabyggingum í forgang og draga saman í miðlægri stjórnsýslu til þess að eiga peninga og svigrúm til að fara í þau verkefni sem blasa við,“ sagði Björg.

„Það þarf einhvern til að kalla fólk til verka“

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, sat fundinn sömuleiðis og sagði gleðilegt að ræða skólamál. Sérstaklega þegar umræðan færi á dýptina en fjallaði ekki endilega um þau mál sem væru oft á yfirborðinu, hvort sem það væru einkunnir eða eitthvað annað.

„Ég vona að það sé dagurinn í dag sem Reykjavíkurborg er að boða til, gott innlegg í það sem við höfum verið að kalla eftir sem er að setjast niður sem samfélag og rýna í hvað við viljum fá út úr skólakerfinu okkar,“ sagði Magnús í viðtali áður en fundurinn hófst.

Magnús Þór Jónsson tók þátt í umræðum á fundinum.Vísir/Einar

Hann sagðist ánægður með framtakið og ítrekaði að menntastefna Reykjavíkur, sem samþykkt var árið 2020, væri lifandi skjal.

„Það þarf einhvern til að kalla fólk til verka og búa til samtöl um það sem skiptir máli. Útgjöld til fræðslumála eru rúmlega 50 prósent af útgjöldum sveitarfélaganna og það eru 60-70 þúsund börn í leik- og grunnskólunum okkar. Þetta er snertiflötur margra og verkefnið er mikilvægt.“

Komin inn fyrir fitulagið og inn að beinagrind

Hann viðurkenndi að hann hefði áhyggjur af niðurskurði í málaflokknum.

„Það er alveg samfelld saga frá hruni hjá sveitarfélögum heilt yfir, við höfum ekki tekið Reykjavík út sérstaklega. Það kom svaka högg á kerfin okkar þegar efnahagshrunið varð og það var skiljanlegt þá, en okkur hefur gengið illa að vinna það fjármagn til baka. Það er augljóst að það snýst meðal annars um hvernig skólakerfið virkar, hvaða fjármagn við setjum í það til að koma til móts við þær þarfir sem væntanlega verða settar fram hér í dag.“

Hann segist alltaf vera til í betri nýtingu fjármagns en segir að hægt sé að grípa í alla frasa um að ekki sé hægt að kreista tár úr steini og svo framvegis.

„Við höfum áhyggjur af því að í mörgum málum séum við komin langt úr einhverju fitulagi og alveg niður í beinagrind. Það skiptir máli að standa ekki bara vörð um heldur bæta í. Vonandi hefur Reykjavíkurborg kjark til að ef slíkir bitar koma upp á borðið að menn átti sig á að það er þjóðhagslega hagkvæmt að koma til móts við að gera þetta kerfi vel úr garði því það mun koma okkur til gagns þegar fram líða stundir. Ég hika ekki við að segja að það þarf klárlega að styrkja ákveðnar undirstöður í kerfinu sem kalla á fjármagn.“

„Þetta verða bara orð á blaði nema þú fáir fólkið sem er að vinna vinnuna með“

Fjármálin voru einnig ofarlega í huga Eyglóar Friðriksdóttur, formanns Félags skólastjórnenda í Reykjavík, sem mætti einnig í viðtal áður en fundurinn hófst.

„Ég vona að það verði metnaðarfull áform sem koma út úr þessum degi og að þeir sem ráða í Reykjavík setji fjármagn og krafta í að framkvæma góða hluti fyrir skólastarfið í borginni,“ sagði Eygló í viðtali við Vísi.

Eygló Friðriksdóttir er formaður Félags skólastjórnenda í Reykjavík.Vísir/Einar

Hún sagði gott og eðlilegt að fara í samráð líkt og á fundinum í dag. Þegar komi að því að framkvæma og taka skref til bætingar þurfi að gera það með skólastjórnendum og kennurum.

„Þetta verða bara orð á blaði nema þú fáir fólkið sem er að vinna vinnuna með, það er aðallykillinn í öllum rannsóknum um skólaþróun. Bæði þá sem eru að stjórna skólunum og að kenna, að fá þá til að vilja og langa í vegferð saman,“ sagði Eygló að lokum.

#menntamálum #mögulegum #niðurskurði #sókn #áhyggjur

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262963889d/sokn-i-menntamalum-en-ahyggjur-af-mogulegum-nidurskurdi

📰 Aðrar fréttir

Segja myglu í nær öllum herbergjum hótelturnsins
📅 17.11.2026 👁️ 0
Segja myglu í nær öllum herbergjum hótelturnsins
Myglu er að finna í um 90% herbergja ókláraðs hótelturns Radisson Red að Skúlagötu 26. Þetta herma heimildir Viðskiptablaðsins. Talið er að tjónið get...
Liggur fyrir hvernig eigi að rífa stúkuna - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 2
Liggur fyrir hvernig eigi að rífa stúkuna - Vísir
„Það liggur fyrir að það þurfi að gera það. Það yrði ekki þess virði að fara að gera það upp,“ segir Steinþór Einarsson, sviðsstjóri menningar- og íþr...
Málið sem vakti mikla reiði tekur nýja stefnu
📅 17.11.2026 👁️ 2
Málið sem vakti mikla reiði tekur nýja stefnu
Breskur karlmaður sem varð 86 ára gamalli konu að bana þegar hann ók á hana á rafkrossara hefur fengið fangelsisdóm sinn þyngdan um eitt ár og níu mán...
'It's hard to keep going': Neets speak to BBC about struggling to get a job
📅 17.11.2026 👁️ 2
'It's hard to keep going': Neets speak to BBC about struggling to get a job
A government-backed review has proposed wide-ranging measures to help get young people into work - but what do young people think?
Thomas Markle charged over child sex material in Philippines
📅 17.11.2026 👁️ 3
Thomas Markle charged over child sex material in Philippines
Markle is being held in prison in the US on a separate charge and has previously denied all of the allegations.
Fær ekki að snúa aftur í forstjórastólinn
📅 17.11.2026 👁️ 2
Fær ekki að snúa aftur í forstjórastólinn
Jensen Huang fær ekki að taka aftur við sem forstjóri tæknifyrirtækisins Nvidia. Stjórn fyrirtækisins greindi frá ákvörðun sinni í kvöld. Fyrr í dag s...
Bandaríkjaher gerir árás á Qeshm-eyju í Hormússundi
📅 17.11.2026 👁️ 2
Bandaríkjaher gerir árás á Qeshm-eyju í Hormússundi
Bandaríkin gerðu loftárás á Qeshm-eyju í Hormússundi í dag, stuttu eftir að íranski byltingarvörðurinn sagðist hafa gert árás á ratsjárstöð í Barein. ...
Tjáir sig um ólík viðbrögð parsins í rifrildi - Svona leysa þær málin
📅 17.11.2026 👁️ 2
Tjáir sig um ólík viðbrögð parsins í rifrildi - Svona leysa þær málin
Leikkonan Sarah Paulson hefur tjáð sig um hvað gerist þegar hún og sambýliskona hennar frá árinu 2015, Holland Taylor, 83 ára, eru ósammála og eiga ja...
Tugþúsundir undirskrifta safnast fyrir Russell Brand – „Réttlæti fyrir Brand“
📅 17.11.2026 👁️ 2
Tugþúsundir undirskrifta safnast fyrir Russell Brand – „Réttlæti fyrir Brand“
Undirskriftasöfnun er hafin til stuðnings hinum dæmda nauðgara Russell Brand. Þegar þetta er skrifað hafa rúmlega 25 þúsund manns skrifað undir listan...
Fyrrverandi lögreglumaður verður geldur - „Við vonum að fjölskyldurnar finni að réttlætinu hafi verið fullnægt“
📅 17.11.2026 👁️ 3
Fyrrverandi lögreglumaður verður geldur - „Við vonum að fjölskyldurnar finni að réttlætinu hafi verið fullnægt“
Bandarískur fyrrverandi lögreglumaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur til geldingar. Dómurinn kemur ofan á þrefaldan lífstíðar fangelsisdóm fyrir ky...
Nvidia reports bumper results as firm says it not reinstating Huang
📅 17.11.2026 👁️ 3
Nvidia reports bumper results as firm says it not reinstating Huang
Nvidia reported strong quarterly earnings on Tuesday amid the dramatic exit of ex-CEO Jensen Huang.
Nvidia reports bumper results as firm says it's not reinstating Huang
📅 17.11.2026 👁️ 0
Nvidia reports bumper results as firm says it's not reinstating Huang
Nvidia reported strong quarterly earnings on Tuesday amid the dramatic exit of ex-CEO Jensen Huang.
Mis­lingar teljast ekki lengur út­dauðir vestan­hafs - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 2
Mis­lingar teljast ekki lengur út­dauðir vestan­hafs - Vísir
Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins er vitnað til gagna á vegum alþjóðaheilbrigðisstofnunar Ameríku (PAHO) þar sem kemur fram að sama tilfellið af misl...
Mis­lingar ekki lengur út­dauðir vestan­hafs - Vísir

Á­hyggjur af stór­aukinni lyfjafölsun - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 2
Á­hyggjur af stór­aukinni lyfjafölsun - Vísir
Á síðasta ári var lagt hald á hátt í fjóra lítra af svokölluðum nýmynduðum kannabínóíðum, eða Spice eins og það er oftast kallað. Efnið svipað til kan...
Hafi gefið táningsdóttur sína í barnahjónaband - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 2
Hafi gefið táningsdóttur sína í barnahjónaband - Vísir
Þetta kemur fram í Landsréttarúrskurði sem var kveðinn upp 30. janúar 2024 en birtist á vef Landsréttar í dag.  Úrksurðað var í máli móðurinnar sama d...
„Ég fór ekki í pólitík til þess að hafa það huggulegt og rólegt“
📅 17.11.2026 👁️ 2
„Ég fór ekki í pólitík til þess að hafa það huggulegt og rólegt“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, kveðst ekki hafa farið í pólitík til þess að hafa það huggulegt og rólegt. Þ...
Gusumeistari mætir borginni í dómsal á morgun og furðar sig á hörkunni - „Sérstakt að fara þessa leið“
📅 17.11.2026 👁️ 3
Gusumeistari mætir borginni í dómsal á morgun og furðar sig á hörkunni - „Sérstakt að fara þessa leið“
Framtíð gusunnar Sækots er í uppnámi en á morgun tekur Héraðsdómur Reykjavíkur fyrir aðfarabeiðni borgarinnar sem freistar þess þar að endurheimta grá...
Telur ekki ástæðu að fara að fordæmi Dana
📅 17.11.2026 👁️ 3
Telur ekki ástæðu að fara að fordæmi Dana
Ísland er ekki á sama stað og Danmörk og nokkur önnur Evrópuríki, sem ætla að senda fólk sem hefur fengið synjun um alþjóðlega vernd til Rúanda í Afrí...
Sjálfstæðismaður fagnar ekki vistaskiptum Ingvars – „Hef raunar verulegar efasemdir um fagnaðarlætin hér á Facebook í gær“
📅 17.11.2026 👁️ 3
Sjálfstæðismaður fagnar ekki vistaskiptum Ingvars – „Hef raunar verulegar efasemdir um fagnaðarlætin hér á Facebook í gær“
Elías Pétursson, fyrrverandi bæjarstjóri og Sjálfstæðismaður, fagnar ekki vistaskiptum þingmannsins Ingvars Þóroddssonar úr Viðreisn í sinn eigin flok...
Úrvinnslugjald á heyrúlluplast gæti hækkað um 92,3%
📅 17.11.2026 👁️ 3
Úrvinnslugjald á heyrúlluplast gæti hækkað um 92,3%
Úrvinnslugjald á heyrúlluplasti gæti verið að hækka um 92,3% samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Í dag er úrvinnslugjaldið, það gjald sem e...
Hrekkjót systkini úr fjöllunum komu óvænt til byggða í dag
📅 17.11.2026 👁️ 3
Hrekkjót systkini úr fjöllunum komu óvænt til byggða í dag
Börn á leikskólanum Austurborg í Reykjavík vöknuðu spennt í morgun enda von á Stekkjastaur og Leppatusku í heimsókn.Börnin fengu svo þann heiður að fa...
Tinie Tempah og Víkingur Heiðar í fíling - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Tinie Tempah og Víkingur Heiðar í fíling - Vísir
Bókmenntahátíðin Iceland Noir fór fyrst fram árið 2013 og hefur árlega verið viðburðarík, með fjölda viðburða tengdum bókmenntum og menningu. Meðal ge...
Hrafnhildur hjólar í Bændasamtökin og stjórnvöld – „Ráðast á þann sem kveikti ljósið“
📅 17.11.2026 👁️ 3
Hrafnhildur hjólar í Bændasamtökin og stjórnvöld – „Ráðast á þann sem kveikti ljósið“
Hrafnhildur Mjöll Geirsdóttir, dýraverndarsinni, kemur Einari Loga Péturssyni til varnar eftir innbrot hans hjá Stjörnugrís. Hún sakar formann Bændasa...
Segja að námslánin hafi fælingarmátt
📅 17.11.2026 👁️ 4
Segja að námslánin hafi fælingarmátt
Síðustu ár hefur þeim fækkað stöðugt sem sjá námslán sem fýsilegan kost til að framfleyta sér meðan á námi stendur. Einn af hverjum átta háskólastúden...
Russian military plane crashes in Siberia killing all 19 on board
📅 17.11.2026 👁️ 4
Russian military plane crashes in Siberia killing all 19 on board
Russia's defence ministry says a technical malfunction was the likely cause of the crash in the Kemerovo region.
„Ég var frosinn í gær og í morgun“
📅 17.11.2026 👁️ 4
„Ég var frosinn í gær og í morgun“
Það er kalt á Sævarhöfðanum þar sem hjólhýsabúar halda sín heimili án rafmagns og vatns.Undanfarnar nætur hefur frostið í Reykjavík farið niður í tveg...
Mann­fall Rússa það mikið að sigur Úkraínu sé að verða ó­hjá­kvæmi­legur - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Mann­fall Rússa það mikið að sigur Úkraínu sé að verða ó­hjá­kvæmi­legur - Vísir
Valur Gunnarsson rithöfundur og sagnfræðingur gerir stríðinu skil í færslu samfélagsmiðlinum Facebook. Hann segir sigur Rússa smám saman vera farinn a...
Kannast ekki við að fleiri hugsi sér til hreyfings úr Viðreisn
📅 17.11.2026 👁️ 2
Kannast ekki við að fleiri hugsi sér til hreyfings úr Viðreisn
Daði Már Kristófersson varaformaður Viðreisnar segir þingflokkinn standa geysilega þétt saman og kannast ekkert við orðróm um að fleiri hugsi sér til ...
Mál tengt andláti Lúðvíks Péturssonar fellt niður
📅 17.11.2026 👁️ 2
Mál tengt andláti Lúðvíks Péturssonar fellt niður
Héraðssaksóknari hefur fellt niður mál á hendur fimm einstaklingum sem höfðu réttarstöðu sakbornings þegar Lúðvík Pétursson féll ofan í sprungu í Grin...
Over 1,000 people died from lung cancer in the Canaries last year
📅 17.11.2026 👁️ 3
Over 1,000 people died from lung cancer in the Canaries last year
Lung cancer was the cause of 1,018 deaths in the Canary Islands in 2025, nine more than the previous year, according to figures published for World Lu...
American soldier arrested in UK taken into US military custody
📅 17.11.2026 👁️ 3
American soldier arrested in UK taken into US military custody
The Metropolitan Police say he has been taken into custody by the US Military over suspected national security and espionage allegations.
Government backs welfare shake-up to prevent 'lost generation'
📅 17.11.2026 👁️ 4
Government backs welfare shake-up to prevent 'lost generation'
Ex-minister Alan Milburn has set out plans to divert spending from benefits towards job support.
Mál gegn fimm vegna and­láts Lúð­víks fellt niður - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Mál gegn fimm vegna and­láts Lúð­víks fellt niður - Vísir
Mbl.is hefur eftir Júlí Karlssyni aðstoðarsaksóknara hjá embættinu að málið hafi verið fellt niður en ekki er gefið upp hvers vegna. Um var að ræða tv...
Elsti Bond-leikarinn gefur nýja gaurnum ráð
📅 17.11.2026 👁️ 3
Elsti Bond-leikarinn gefur nýja gaurnum ráð
Elsti núlifandi Bond-leikarinn George Lazenby á nokkur góð ráð til handa nýjasta meðlimi Bond-hópsins, Robert Pattinson.Nærri sex áratugir eru liðnir ...
„Ef við höfum ekki áhuga á því að þessi dæmi verði mjög mjög mörg þá þarf að stoppa þetta“
📅 17.11.2026 👁️ 3
„Ef við höfum ekki áhuga á því að þessi dæmi verði mjög mjög mörg þá þarf að stoppa þetta“
„Við erum að mörgu leyti ríkari sem samfélag vegna innflytjenda en þessi fjölgun byggði ekki á neinni stefnu. Þetta einhvern veginn bara gerðist. Stjó...
Dómarar hæfir eftir allt saman - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 4
Dómarar hæfir eftir allt saman - Vísir
Hæstiréttur fellir þar úr gildi úrskurð Landsréttar frá því í september þess efnis að allir dómarar í Héraðsdómi Reykjavíkur væru vanhæfir til að dæma...
Betting With Cryptocurrency: Advantages, Payout Times and Trade-Offs
📅 17.11.2026 👁️ 4
Betting With Cryptocurrency: Advantages, Payout Times and Trade-Offs
Funding a sportsbook account with crypto instead of a card or bank transfer changes more than the deposit screen. It changes how fast winnings actuall...
'Can I really do this?': Neets speak to BBC about struggling to get a job
📅 17.11.2026 👁️ 5
'Can I really do this?': Neets speak to BBC about struggling to get a job
A government-backed review has proposed wide-ranging measures to help get young people into work - but what do young people think?
Jensen Huang segist vera tilbúinn að snúa aftur til Nvidia
📅 17.11.2026 👁️ 3
Jensen Huang segist vera tilbúinn að snúa aftur til Nvidia
Jensen Huang, sem lét af störfum sem forstjóri bandaríska tæknirisans Nvidia í síðustu viku, segist reiðbúinn að snúa aftur til starfa hjá fyrirtækinu...
Frá fangelsismúrum að fundarborði valdsins
📅 17.11.2026 👁️ 3
Frá fangelsismúrum að fundarborði valdsins
Ólafur Ágúst Hraundal skrifar: Það hefur um nokkurt skeið sótt á mig sú spurning hvort réttindabarátta Afstöðu sé smám saman að dofna undir núverandi ...
William and Catherine celebrate Earthshot Prize winners in Mumbai
📅 17.11.2026 👁️ 3
William and Catherine celebrate Earthshot Prize winners in Mumbai
The Prince and Princess of Wales were joined by sporting and acting stars for the annual environmental awards ceremony.
Handtóku fólk grunað um að þvinga barn í hjónaband
📅 17.11.2026 👁️ 4
Handtóku fólk grunað um að þvinga barn í hjónaband
Erlendur karlmaður sem ferðaðist með 15 ára gamalli stúlku var stöðvaður á Keflavíkurflugvelli í byrjun nóvember 2024. Hann gat ekki gefið fullnægjand...
Akur­eyringar beðnir um að láta ekki renna í pottinn - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 5
Akur­eyringar beðnir um að láta ekki renna í pottinn - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurorku. Þar segir að staðan í birgðageymum bæjarins hafi verið fyrir neðan öryggismörk síðan í gærkvöldi, mánud...
Sonur sinn sitji eftir í skóla án að­greiningar - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 4
Sonur sinn sitji eftir í skóla án að­greiningar - Vísir
Kristín gerði sögu sonar síns að umtalsefni í umræðum um áform meirihlutans um að efla skóla- og frístundastarf. Hún rifjaði upp hvernig fyrst vaknaði...
Deutsche Bank hundsaði viðvaranir um vafasama viðskiptajöfra
📅 17.11.2026 👁️ 3
Deutsche Bank hundsaði viðvaranir um vafasama viðskiptajöfra
Þýski fjármálarisinn Deutsche Bank setti eigin hagsmuni ofar því að fylgja alþjóðlegum refsiaðgerðum og lögum og reglum um varnir gegn peningaþvætti. ...
„Hverfur úr vitundinni en þagnar ekki“ - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 4
„Hverfur úr vitundinni en þagnar ekki“ - Vísir
Á sýningunni koma saman myndlistarmennirnir Hlynur Helgason, Margrét M. Norðdahl, Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir og Sandra María SIgurðardóttir, jafna...
Staða hitaveitunnar viðkvæm vegna kuldakasts
📅 17.11.2026 👁️ 5
Staða hitaveitunnar viðkvæm vegna kuldakasts
Staðan í birgðageymum hitaveitunnar á Akureyri er fyrir neðan öryggismörk og hefur verið frá því í gærkvöldi. Notkun á heitu vatni hefur aukist umfram...
Segja Matvælastofnun að endurskoða verklag sitt eftir að sending með fæðubótarefni var stöðvuð
📅 17.11.2026 👁️ 4
Segja Matvælastofnun að endurskoða verklag sitt eftir að sending með fæðubótarefni var stöðvuð
Aðili sem ætlaði að flytja inn fæðubótarefnið Berberine HCL til einkanota lagði fram stjórnsýslukæru til atvinnuvegaráðuneytisins eftir að póstsending...
Við­reisn brjóti öll lög­mál - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 5
Við­reisn brjóti öll lög­mál - Vísir
Þetta kemur fram í athugasemd Össurar á Facebook síðu Heimildarinnar. Þar fer Össur mikinn við frétt af því að Ingvar Þóroddsson hafi yfirgefið Viðrei...