Söngvarinn sem skaust upp á stjörnuhimininn árið 2004 með plötunni Back To Bedlam var að gefa út spánýja plötu á dögunum, plötuna Airplane mode. Til að markaðssetja plötuna hefur hann farið mikinn á samfélagsmiðlum og lofað því að fari hún á toppinn á vinsældarlistum muni hann skipta um nafn. Hann hafi raunar lofað því að gera það sama fyrir tveimur árum en aðdáendur hans klúðrað málunum, þá hafi hann heitið því að breyta nafni sínu í Blunty McBluntface.
„Hæ, ég er James Blunt og þið klúðruð þessu. Fyrir tveimur árum lofaði ég því að breyta nafninu mínu í Blunty McBluntface ef platan mín færi í efsta sæti. Það gerðist ekki, ykkur að kenna. Þannig að núna veiti ég ykkur annað tækifæri. Þið gætuð hafa heyrt af því að nýja platan mín Airplane mode er komin út og ef hún kemst í sæti númer eitt mun ég breyta nafninu mínu....í Ryan Air.“
Í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlum nú í kvöld virðist vera sem hann hafi látið verða af þessu. Hann segir að nafnabreytingin hafi kostað hann 53 pund eða því sem nemur tæpum níu þúsund íslenskum krónum.
Söngvarinn hefur um árabil verið þekktur fyrir ótrúlega hnyttni sína. Hann stundaði það sem dæmi að svara aðdáendum með stuttum en hnyttnum svörum á samfélagsmiðlinum Twitter en skemmtilegast fannst honum þó að svara þeim sem þola hann ekki og tónlistina hans.