Kostaríski blaðamaðurinn Camilo Rodriguez var skotinn til bana rétt fyrir utan höfuðborgina San José í dag. Rodriguez var á ferð í bíl sínum þegar tveir menn á mótorhjóli óku upp að honum og hófu skothríð. Hann hafði áður greint frá því að honum hefðu borist morðhótanir frá glæpahópum.
Rodriguez var fimmtugur að aldri. Hann var sjálfstæður blaðamaður og hafði meðal annars skrifað um tengsl fíkniefnasala við stjórnmálamenn í landinu. Í fyrra höfðaði forseti landsins, Laura Fernandez, meiðyrðamál gegn Rodriguez fyrir að halda því fram að heimili hennar hafi verið byggt fyrir illa fengið fé úr fíkniefnasölu.
Fernandez byggði kosningabaráttu sína að miklu leyti á loforðum um að ná stjórn á glæpaöldunni í landinu. Hún segist sækja innblástur sinn til Nayib Bukele, forseta El Salvador, en hann hefur fengið orð á sig fyrir að stjórna landi sínu með harðri hendi.
Rodrigues hafði einnig sakað fyrrverandi eiginkonu sína um aðild að fíkniefnasölu en hún lagði fram kæru og sakaði hann um að hafa beitt börn þeirra kynferðisofbeldi.
Var talið öruggasta land Mið-Ameríku
Blaðamannasamtök Kosta Ríka fordæma morðið og krefjast þess að það verði rannsakað til hlítar.
„Allar vísbendingar hingað til benda til þess að þaggað hafi verið niður í gagnrýnisrödd í Kosta Ríka, manneskju sem birti upplýsingar um skipulagða glæpastarfsemi í landinu,“ sagði Yanancy Noguera, formaður samtakanna, í samtali við AFP-fréttastofuna.
Kosta Ríka hefur á tiltölulega skömmum tíma umbreyst úr því að vera viðkomustaður fyrir fíkniefnasmygl yfir í að verða aðgerðarmiðstöð fyrir skipulag slíkrar glæpastarfsemi. Landið þótti áður eitt öruggasta ríki Mið-Ameríku en það hefur hratt tapað þeim stimpli.