Japönsk stjórnvöld greina frá því að orrustuþotur hafi verið sendar af stað eftir að tvær flugvélar sem Japanir telja að séu rússneskar rufu japanska lofthelgi. Það var rétt eftir klukkan sjö í gærkvöld að íslenskum tíma, eða fjögur að staðartíma.
Flugvélarnar komu inn í lofthelgina nálægt eyjunni Okinoshima við vesturenda Japan, ekki langt frá Suður-Kóreu. Orrustuþoturnar voru sendar af stað til að vara flugvélarnar við.
Minoru Kihara, talsmaður ríkisstjórnarinnar í Japan, segir að brot rússnesku vélanna á lofthelgi landsins sé ógn við öryggi Japan og algjörlega óásættanlegt.
Samskipti Japan og Rússlands hafa súrnað eftir að japanskur blaðamaður var handtekinn vegna gruns um njósnir. Blaðamaðurinn var handtekinn á eyjunni Sakhalin um miðjan október, en eyjan er við austurströnd Rússlands, rétt norðan við Japan.
Japönsk stjórnvöld höfnuðu því að blaðamaðurinn hefði stundað njósnir og kröfðust þess að hann yrði leystur úr haldi.
Þá sögðu þau Rússland brjóta gegn samkomulagi sem er í gildi á milli landanna og tryggir aðgang ræðismanna að ríkisborgurum sem eru í haldi innan fjögurra daga frá handtöku. Erindrekar Japans fengu ekki leyfi til að hitta blaðamanninn
Einnig er skammt síðan rússnesk stjórnvöld yfirtóku eignir tóbaksframleiðandans Japan Tobacco í Rússlandi.