Dönsk fréttastöð hefur ákveðið að hætta að fjalla um elstu konu Danmerkur eftir að upp komst að hún var virkur meðlimur í danska Nasistaflokknum á stríðsárunum.
TV Midtvest er héraðsfréttastöð fyrir Mið- og Vestur-Jótland og tilheyrir stórmiðlinum TV2. TV Midtvest hafði fjallað ítarlega um Kirsten Schwalbe, bæði í máli og myndum, vegna þess að um miðjan október fagnaði Schwalbe 112 ára afmæli sínu. Við það varð hún elsti Dani sem vitað er til að hafi verið uppi.
Í tilefni af áfanganum gaf Gyldendal-bókaútgáfan jafnframt út bók um Schwalbe 8. október. Til stendur að gera breytingar á bókinni eftir að upplýsingarnar komu fram.
Sagði mann sinn hafa skráð sig
Fréttamiðillinn Kristeligt Dagblad sagði fyrst frá því í október að á stríðsárunum hefði Schwalbe verið meðlimur í Þjóðernissósíalíska verkamannaflokki Danmerkur, DNSAP, sem var mjög innblásinn af þýska nasistaflokknum.
Hún staðfesti þetta við Kristeligt Dagblad og sagði mann sinn hafa skráð sig í flokkinn. Hún hefði ekki haft skoðun á því sjálf. Hún hafi ekki verið mjög pólitísk. Þessar upplýsingar koma þó hvorki fram í umfjöllun TV Midtvest, sem hefur fylgt Schwalbe eftir í nokkur ár, né í bók Gyldendal.
Þá sagði fréttamiðillinn Friheldsbladet frá því í gær að skjöl sýni fram á að Schwalbe hafi ekki aðeins verið meðlimur í flokknum heldur hafi hún gegnt stöðu deildarstjóra innan hans frá ágúst 1943 til júlí 1944. Þá hafi hún á sama tímabili farið með stjórn kvennahóps í flokknum.
Sendu SS-mönnum jólagjafir
Töluverð umfjöllun hefur spunnist um málið. Claus Bundgaard Christensen, sagnfræðingur við Hróarskelduháskóla, er einn þeirra sem hafa rætt málið við danska ríkisútvarpið.
Hann segir augljóst að Kirsten Schwalbe hafi verið meira en áhugalaus meðlimur í flokknum og sennilegra sé að hún hafi verið virkur þátttakandi í starfseminni.
Hann bendir til að mynda á að það sé vitað að deildarstjórar hafi séð um að senda út fundarboð og leiða fundi. Þá hafi kvennahóparnir verið virkir í að styðja við danska SS-hermenn sem börðust á austurvígstöðvunum. Þær hafi meðal annars sent þeim bréf og jólagjafir.
Gerði ekkert ólöglegt
Hann vill þó undirstrika að ekkert af því sem Kirsten Schwalbe aðhafðist á þessum tíma hafi verið glæpsamlegt eða ólöglegt. Það sé mikilvægt að muna að Nasistaflokkurinn var raunverulegur stjórnmálaflokkur á stríðsárunum.
„Í dag tengjum við nasisma oft við öfgafulla nýnasista,“ segir Christensen. „En hann var raunverulegur stjórnmálaflokkur sem var í framboði á þinginu. Það voru nasistar kosnir inn á þingið, fyrst árið 1939 og aftur árið 1943.“
Flokkurinn gaf út dagblað, hélt flokksfundi og þá var jafnvel starfræktur nasískur frímerkjaklúbbur. Töluvert af upplýsingum liggja fyrir um meðlimi flokksins og þeir hafa mikið verið rannsakaðir.
„Og það sýnir sig að þetta var upp til hópa mjög venjulegt fólk,“ segir Christensen. „Þau voru ekki siðblindingjar.“
Fjölskylda Schwalbe hefur tilkynnt TV Midtvest að það hafi tekið mjög á hana. Fjölmiðillinn hefur því ákveðið að hætta að fylgja Schwalbe eftir og fjalla um hana. Til stóð að klára lokaþátt seríunnar en honum hefur verið aflýst.