Þetta kemur fram á dagskrá dómstóla en málið verður tekið fyrir á morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Prís og Heimkaup eru bæði í eigu Samkaupa. Samkaup eru svo í eigu Dranga hf., sem er í meirihlutaeigu Skeljar hf. Skel er skráð á markað en er þó í meirihlutaeigu Strengs hf. Þar hefst önnur eigandaflétta félaga en Jón Ásgeir Jóhannesson er stjórnarformaður bæði Strengs og Dranga.
Gréta hætti nokkuð óvænt sem framkvæmdastjóri Prís í desember í fyrra eftir að hafa ráðið sig þangað í ágúst árið á undan.