Ísraelskir landtökumenn skutu 60 ára gamla palestínska konu í höfuðið í gær. Hún lést skömmu síðar af sárum sínum. Ísraelsher greinir frá því að palestínskir árásarmenn frá þorpi á Vesturbakkanum hafi setið fyrir ísraelsku landtökumönnunum.
Þeir hafi vísvitandi ekið á miklum hraða á bíl þeirra og fylgt ákeyrslunni eftir með grjótkasti. Ísraelsmennirnir beittu þá skotvopnum gegn Palestínumönnunum. Auk konunnar voru fjórir aðrir þorpsbúar færðir á sjúkrahús með skotsár.
Fyrr í gær ók ísraelskur landtökumaður á fimm Palestínumenn á Vesturbakkanum. Ísraelski herinn sagði við AFP-fréttaveituna að atvikið hefði verið umferðarslys.
Stigmögnun ofbeldis
Ofbeldi á milli landtökumanna á Vesturbakkanum og Palestínumanna hefur færst í aukana undanfarnar vikur, sérstaklega í aðdraganda kosninganna í Ísrael í lok október. Á þeim tíma reyndi Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sérstaklega að höfða til harðlínumanna meðal landtökufólks.
Vesturbakkinn hefur verið hernuminn af Ísrael frá árinu 1967 og í dag búa þar fleiri en 500 þúsund Ísraelar. Byggðir þeirra teljast þó ólögmætar samkvæmt alþjóðalögum.
Frá því að stríðið á Gaza hófst í október 2023 hafa ísraelskar öryggissveitir og landnemar banað 1016 Palestínumönnum á svæðinu. Á sama tíma hafa Palestínumenn orðið 51 Ísraela að bana.