Svo kemur árið 2026.
Amma er í ræktinni klukkan sex á morgnana. Afi fer út með hundinn á morgnana en í ræktina síðdegis. Spinning.
Barnabarnið fær myndsímtal frá Tene og amma er dugleg að birta story á Instagram. Jafnvel töff reels.
Þau eru líka ógeðslega góð í golfi. Spila hérlendis og erlendis. Félagslífið er líka virkt; matarklúbbar og alls konar.
Þegar foreldrarnir spyrja hvort amma og afi geti passað á föstudag er svarið: „Við erum að fara á tónleika með Bubba.“
Hvað gerðist? Og hvernig verða nýju hlutverkin til?
Hér eru tvö skemmtileg dæmi úr rannsóknum:
Afarnir taka meiri þátt!
Í rannsókn Oxford-stofnunarinnar um öldrun í Danmörku var rætt við 49 danska afa á aldrinum 50 til 79 ára. Þeir sinna barnabörnunum meira en áður: fara með þau í skólann, skipta á bleyjum og lesa fyrir svefn. Skýringin er sú að þetta er kynslóðin sem var sjálf virk í föðurhlutverkinu. Afinn í stólnum með Moggann er á útleið.
Amma og afi eiga sitt eigið líf
Samkvæmt grein í International Journal of Environmental Research and Public Health frá 2023 er fólk sem nú er á sextugs- og sjötugsaldri einfaldlega hópur sem er mjög upptekinn við að gera alls konar, vill líka þróa sig, læra og leyfa sínum draumum að rætast. Heilt yfir taka amma og afi því minni þátt í umönnun barnabarnanna. Dagatalið þeirra er einfaldlega fullbókað.
Hvort tveggja eru jákvæðar fréttir. Og ekkert að því að amma og afi séu stundum of upptekin til að passa.
Tíðarandinn hefur einfaldlega breyst, fólk eldist síðar, er aktíft lengur og það að vera 50+ í dag er meiri staðfesting á að nýr og spennandi kafli í lífinu sé hafinn. Ekki hraðbraut í átt að öldrun, prjónaskap eða endurnýjun á áskrift Moggans.