Í febrúar árið 1981 hvarf 31 árs gömul móðir sporlaust eftir að hafa yfirgefið krá í Indiana-ríki í Bandaríkjunum. Sex dögum síðar fannst lík hennar í farangursgeymslu eigin bíls, sem sat fastur í leðju á afskekktum akri.Morðið var óupplýst í áratugi en nú, 45 árum síðar, telur lögregla sig loksins hafa fundið morðingjann. Frá þessu greinir bandaríska tímaritið People.Juanita Boyd var 31 árs og starfaði við dómshúsið í LaPorte-sýslu í Indiana. Hún átti níu ára son sem hún var mjög náin. Að sögn lögreglu var það alls ekki í hennar eðli að skila sér ekki heim.
Ung móðir fannst látin í skottinu á eigin bíl – 45 árum síðar kom sannleikurinn í ljós