Bandaríski réttarlæknirinn Michael Freeman telur að Jeffrey Epstein hafi ekki svipt sig lífi í fangaklefa árið 2019, heldur hafi hann verið myrtur.Freeman hefur undanfarna tólf mánuði rannsakað krufningargögn Epsteins og segir áverka á hálsi hans benda frekar til kyrkingar en hengingar.Niðurstöður Freemans ganga þvert á opinbera niðurstöðu bandarískra yfirvalda um að Epstein hafi svipt sig lífi. Frá þessu greinir The New York Times, en breska dagblaðið Daily Mail fjallar einnig um málið.
Sérfræðingur varpar sprengju eftir að hafa rannsakað krufningargögn Epsteins