Áhrifavaldurinn, bresk kona að nafni Meadow Waddington, birti í gær myndskeið á Instagram þar sem hún greindi frá því að hún hefði misst snjallsíma sinn ofan í ána.
Af umhverfinu má ráða að þetta hafi verið við Seljalandsfoss.
Svo virðist sem annar ferðamaður á svæðinu hafi gripið til þeirra ráða að klæða sig úr skóm og sokkum, bretta upp á gallabuxnaskálmarnar og vaða á eftir símanum þar sem hann lá undir brúnni yfir Seljalandsá fyrir neðan fossinn.
Karlmaðurinn lét kuldann á sig fá og virtist sem áhrifavaldurinn ætlaði að hoppa hæð sína þegar manninum tókst að sækja símann upp úr ísköldu vatninu.
Konan skrifar við myndskeiðið að hún hafi greitt manninum 200 pund til þess að sækja símann.
Reyndar titlar hún manninn „einhvern gaur“ og virðist það vekja hneykslan fólks í kommentakerfinu.