Óljóst er hve miklar skemmdirnar eru eftir árásirnar í Kænugarði. Vitali Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, birti í morgun myndband þar sem hann segir að verið sé að skoða brýrnar.
Myndefni frá Kerch-sundi sýnir að brúin yfir sundið er að hluta til hrunin í sjóinn. Það mun líklega koma niður á skipasiglingum frá Asóv-hafi.
The main arch of the Kerch road bridge to Crimea is gone. Quite a little present to Putin as he heads to the summit in Shenzhen. https://t.co/qmC6uLHGIs
— Yaroslav Trofimov (@yarotrof) November 17, 2026
Í frétt rússnesku fréttaveitunnar RIA segir að búið sé að stöðva umferð yfir brúnna, tímabundið, á meðan verið sé að meta skemmdirnar. Umferð lesta um brúnna hefur einnig verið stöðvuð.
Kerch-brúin er nítján kílómetra löng og tengir Krímskaga, sem Rússar hernámu og innlimuðu ólöglega í rússneska sambandsríkið árið 2014, við meginland Rússlands. Opnað var fyrir umferð yfir brúnna árið 2018 og er hún mikilvægur hlekkur í birgðakeðju Rússa.
Sjá einnig: Halli á Kerch-brú eftir nýja árás
Úkraínumenn hafa því í gegnum árin gert þó nokkrar árásir á brúnna. Meðal annars hafa þeir notast við sjávardróna og fljúgandi sjálfsprengidróna en í október 2022 var hluti brúnnar felldur í sjóinn með bílasprengju.
Þá var tiltölulega fljótt gert við brúnna. Skemmdirnar virðast þó meiri að þessu sinni og viðgerðir gætu verið erfiðari í framkvæmd vegna aukinnar árásargetu Úkraínumanna.
Í Úkraínu hefur myndband verið í dreifingu í morgun, sem á að sýna frá árásinni á brúnna í nótt. Úkraínskir embættismenn hafa meðal annars deilt myndbandinu.
A Ukrainian FP-5 Flamingo cruise missile seconds before striking the Kerch Bridge. Glory to Ukraine! https://t.co/E7g5ZerzQA
— Anton Gerashchenko (@Gerashchenko_en) November 17, 2026
Tass segir að til standi að halda skyndi-ráðherrafund í Rússlandi vegna árásarinnar á Kerch-brúnna.
Auk þess að gera árás á Kerch-brúnna, gerðu Úkraínumenn einnig áfram árásir á olíuvinnsluinnviði Rússlands.
Rússar skutu í nótt nokkrum skotflaugum að brúm í Kænugarði en Úkraínumenn glíma við mikinn skort á flugskeytum í loftvarnarkerfi sem hægt er að nota til að skjóta niður rússneskar skotflaugar. Árásin á höfuðborgina stóð yfir í nokkrar klukkustundir, samkvæmt frétt Kyiv Independent, en þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rússar gera árásir á þessar brýr, sem eru mjög mikilvægar fyrir um þrjár milljónir íbúa Kænugarðs.