Kirsten Schwalbe er 112 ára og elsta manneskja Danmerkur í sögunni. Fjölmiðlar í landinu hafa fjallað mikið um hana síðastliðinn mánuð en hún sló metið í október. Meðal annars hefur sjónvarpsstöðin TV Midtvest sýnt þætti og skrifað fjölda greina um ævi hennar og búið er að gefa út bók um ævi hennar sem ber heitið „Við verðum að hafa eitthvað til að hlæja að“.
Hlýddi eiginmanninum
Nokkrum dögum eftir að hún sló metið kom í ljós að hún hafði verið skráð í nasistaflokk Danmerkur á tímum seinni heimsstyrjaldar. Hún gekkst við því að hafa verið skráð í flokkinn en sagðist einungis hafa gert það vegna þess að eiginmaður hennar hafi sagt henni að gera það. Hún hefði ekki haft neinn áhuga á pólitík og hlýtt honum.
Í gær greindi Frihedsbrevet frá því að það væri ekki satt að hún hefði einungis verið skráð í flokkinn. Hún hafi leitt deild innan flokksins í Holstebro og verið leiðtogi kvenfélags flokksins. Sagnfræðingur sagði við blaðið að það væri ekki hægt að draga það í efa að miðað við gögn málsins hafi hún verið þekkt og áberandi í starfi flokksins á þessum tíma.
Kvenfélög hafi sent gjafir, bréf og fleira á danska liðsmenn SS-sveita. Sagnfræðingurinn segir þó að það sé mikilvægt að fólk átti sig á því að Schwalbe hafi ekki framið neina glæpi sem meðlimur félagsins.
Hætta við að sýna þáttinn
Fjölskylda Schwalbe segir umfjöllunina hafa mikil áhrif á Schwalbe sem verður 113 ára í mars á næsta ári. Hún hefur því ekki tjáð sig um uppljóstranir Frihedsbrevet.
TV Midtvest hefur þó ákveðið að sýna ekki síðasta þátt þáttaraðarinnar „Villtu ár Kirstenar“ sem fjalla um ævi hennar og ætla ekki að taka fleiri viðtöl við hana í bili. Þá hafa útgefendur bókarinnar ákveðið að í næsta prenti verði bætt við kafla um að hún hafi verið meðlimur nasistaflokksins.