Í dag verður austanátt, 10-18 m/s sunnan- og suðaustantil og dálítil slydduél. Annars mun hægari austlæg eða breytileg átt og yfirleitt þurrt. Frost 1 til 13 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands, en hiti kringum frostmark við suðurströndina.
Suðlæg eða breytileg átt 5-10 á morgun og víða bjart, en skúrir eða slydduél við suðaustur- og austurströndina. Slydduél eða él norðantil annað kvöld. Hiti breytist lítið.
Eftir frost víða um land síðustu daga er útlit fyrir „hlýja“ helgi þegar allar hitatölur verða rauðar. Hiti verður þó einungis á bilinu 1 til 8 stig, en hlýtt þó miðað við síðustu daga.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Norðaustlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða bjart, en stöku él á Austfjörðum og Ströndum. Frost 0 til 12 stig, kaldast inn til landsins.
Á fimmtudag:
Norðlæg eða breytileg átt 3-8 og sums staðar dálítil él, en annars skýjað með köflum og að mestu þurrt. Frostlaust syðst, en annars 0 til 8 stiga frost.
Á föstudag:
Vaxandi suðaustanátt og dálítil rigning eða slydda, einkum við ströndina, en þurrt að kalla á Norðurlandi. Hiti breytist lítið.
Á laugardag:
Ákveðin suðaustan átt og rigning eða slydda um allt land. Hlýnar heldur í veðri.
Á sunnudag:
Líkur á suðlægri átt og rigningu eða slyddu sunnan- og vestanlands, en styttir upp og léttir til norðan- og austanlands. Hiti 1 til 8 stig.
Á mánudag:
Útlit fyrir austanátt með dálítilli rigningu, en þurrt og bjart norðantil. Hiti breytist lítið.