Dótturfélag dótturfélags Íslandsbanka hefur keypt 20 íbúðir í fjölbýlishúsi sem er verið að reisa við Valshlíð og Haukahlíð á Hlíðarenda í Reykjavík. Bankinn hefur fjármagnað framkvæmdirnar og gefið út tryggingabréf upp á 12 milljarða og veðskuldabréf upp á einn milljarð vegna þeirra.
Morgunblaðið greinir frá fasteignakaupunum í dag. Þau eru gerð í nafni Fastengis sem er dótturfélag eignarhaldsfélagsins Miðengis sem er dótturfélag Íslandsbanka. Fastengi greiddi 80% af kaupverðinu með millifærslu og gaf út skuldaviðurkenningu fyrir þeim 20% sem eftir standa.
Mjög hefur hægt á sölu íbúða síðustu misseri, sérstaklega sölu nýrra íbúða. Verktakafyrirtæki sitja því uppi með óseldar íbúðir og lán á háum vöxtum.
Morgunblaðið vísar til greiningar Acro verðbréfa sem vara við brotlendingu á fasteignamarkaði. Þar segir að tugir eða hundruð nýbygginga gætu komist í eigu bankanna á næstu mánuðum vegna slæmrar fjárhagsstöðu sumra verktaka.