Tintori og Gardner hafa verið í sambandi síðan 2024 og reglulega birt myndir af sér saman á samfélagsmiðlum. Tintori er leikstjóri og kvikmyndagerðarmaður og var hluti af hópnum Court 13 sem gerði myndina Beasts of the Southern Wild. Þá hefur hópurinn unnið að tónlistarmyndböndum fyrir listamenn á borð við The Killers, Arcade Fire og Solange.
Gardner er þekktust fyrir tíma sinn í Saturday Night Live-þáttunum vinsælu á NBC. Þar var hún frá 2017 til 2025 en hætti óvænt í fyrra þegar samningur hennar var ekki framlengdur.
Í grein TMZ segir að Gardner sé nú að syrgja og sé umkringd vinum og fjölskyldu.