Við þekkjum flest einhvern sem erfitt er að velja gjöf handa. Makann sem kaupir sér sjálfur það sem hann vantar. Pabbann sem segist ekkert þurfa. Bróðurinn sem sendir aldrei óskalista.
„Á hverju ári hefst sama leitin. Það þarf að finna eitthvað handa makanum, pabba eða bróður sem virðist eiga allt,“ segir Ómar Ómarsson, umboðsaðili norska nærfatamerkisins Comfyballs á Íslandi. „Það þarf helst að vera eitthvað sem gleður, kemur að gagni og verður tekið í notkun eftir að jólapappírinn er farinn í endurvinnsluna.“
Þar koma Comfyballs til sögunnar, nærbuxurnar sem eru aldeilis búnar að slá í gegn hjá íslenskum karlmönnum. Nærbuxur eru kannski ekki stærsta gjöfin undir trénu, en þær gætu orðið sú sem hann kann best að meta í daglegu lífi.
„Það kæmi okkur því lítið á óvart ef parið sem þú gefur honum um jólin yrði fljótlega það sem hann leitar fyrst að eftir þvott. Og hver veit nema nærbuxurnar verði uppáhaldsjólagjöfin hans þetta árið? Við finnum líka fyrir því eftir jólin hversu vel gjöfin hefur hitt í mark. Það er ekkert minna að gera hjá okkur í janúar þegar þeir sem fengu Comfyballs í jólagjöf panta hjá okkur fleiri pör.“
Þægindi sem gera gjöfina að góðri hugmynd
Ómar segir Comfyballs vera hannaðar með þægindi í fyrirrúmi. „Sérstök hönnun að framan, sem kallast PackageFront™, gefur viðkvæmum svæðum sitt eigið rými. Lögunin og mjúka efnið gera þær að nærbuxum sem er gott að klæðast yfir daginn, hvort sem hann er í vinnunni, í ræktinni, á ferðinni eða að slaka á heima.“
Þetta er einmitt það sem getur gert þær að svo góðri gjöf. „Þú ert að gefa honum eitthvað sem hann notar daglega og fær að njóta löngu eftir jólin. Ef hann hefur ekki prófað Comfyballs áður gæti lítill pakki undir trénu því orðið upphafið að nýju uppáhaldi í nærbuxnaskúffunni.“
Og ef hann á Comfyballs fyrir er gjafahugmyndin ekki úr sögunni. Það má alltaf bæta við í skúffuna, sérstaklega þegar maður veit hvaða nærbuxur hann vill helst vera í.
Loksins komin með gjafahugmynd
„Margar konur hafa sagt okkur hjá Comfyballs að þær séu fegnar að vera loksins komnar með gjafahugmynd sem hentar um jól, á afmælum, á bóndadaginn, á valentínusardaginn og við fleiri tilefni. Hugmynd sem þær geta gripið til aftur og aftur.“
Comfyballs eru einnig vinsæl aukagjöf til maka. Eitt par með stærri gjöfinni er persónuleg viðbót og getur orðið sá hluti gjafarinnar sem er mest notaður.
„Við eigum líka samstæð jólasett fyrir konur og karla, tilvalið fyrir pör sem vilja vera í stíl og hafa það einstaklega þægilegt um jólin.“
Það er ágætt að þurfa ekki að finna upp hjólið fyrir hvert tilefni.
Lítill pakki sem gæti orðið í uppáhaldi
Fyrir þann sem á allt er því kannski kominn tími til að hugsa um eitthvað sem hann notar alla daga, segir Ómar. „Gjöf þarf ekki að vera stór eða flókin til að hitta í mark og dagleg þægindi eru eitthvað sem gott er að gefa. Uppáhaldsjólagjöfin þarf enda ekki að koma í stærsta pakkanum. Við fáum stöðugt áfyllingar fyrir jólin og úrvalið hjá okkur er afar fjölbreytt. Við bjóðum bæði einlitar nærbuxur og nærbuxur í skemmtilegum litum og með mynstri.“
Comfyballs-vörurnar fást bæði í versluninni Daría & herrar, í Firðinum í Hafnarfirði og í netverslun Comfyballs.is.