Hluti Kertsj-brúarinnar, sem tengir Krímskaga við meginland Rússlands, er sagður hafa hrunið í sjóinn eftir umfangsmiklar drónaárásir Úkraínumanna síðasta sólarhringinn.Rússnesk stjórnvöld hafa staðfest að alvarlegar skemmdir hafi orðið á brúnni. Fjallað er um þetta á vef Sky News.Mykola Lukashuk, formaður héraðsráðs Dnipropetrovsk í Úkraínu, greindi frá því á Telegram í morgun að annar af tveimur brúarbogum mannvirkisins hefði hrunið í sjóinn. Hann birti jafnframt ljósmynd sem virðist sýna umfangsmiklar skemmdir.
Þungt högg fyrir Pútín: Mikilvæg brú sögð hrunin eftir árásir Úkraínumanna