Dómsmálaráðuneytið hefur samið við Háskóla Íslands um umsjón með íslenskuprófum vegna umsókna um íslenskan ríkisborgararétt. Háskólinn tekur við prófunum af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Samningur dómsmálaráðuneytisins og Háskóla Íslands er til fjögurra ára. Háskólinn skuldbindur sig til að halda prófin minnst tvisvar á ári og leggur til starfsfólk, sérfræðiþekkingu, aðstöðu og prófgögn.
Háskólinn fékk tæpar 8 milljónir frá ráðuneytinu í upphafskostnað til að tryggja þjálfun prófdómara og tryggja að prófefni sé í samræmi við hæfniviðmið. Próftökugjald verður 50 þúsund krónur. Það rennur beint til Háskólans og er ætlað að standa straum af fyrirlögn, yfirferð og þróun prófa.
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins er haft eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að það þurfi að gera skýrar kröfur um íslenskukunnáttu þeirra sem vilji setjast að á Íslandi til frambúðar.
„Hins vegar, eins og fram kemur í stjórnarsáttmálanum, verða stjórnvöld um leið að tryggja raunhæf tækifæri til íslenskukennslu. Þetta tvennt helst í hendur og um það þarf að eiga samtal við menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið.“
Fyrsta prófið í háskólanum verður 12. desember. Opnað var fyrir skráningu í gær en lokað aftur tveimur tímum síðar þegar 42 höfðu skráð sig. Næstu próf verða auglýst í janúar.