„Ég byrjaði á þessu í sumar, í raun bara sem áhugamál,“ segir Niklái Nysted, höfundur Snørið. „Bróðir minn stakk upp á að það gæti verið töff að gera veiðileik og það vatt upp á sig.“
Um miðjan október gaf hann leikinn út og vildi meta áhuga fólks. Nú þegar hafa nokkur hundruð manns keypt leikinn og um þúsund manns í 23 löndum spila ókeypis útgáfuna.
Áhuginn var slíkur að Niklái hefur hönnun leiksins núna að aðalstarfa. Hægt er að kaupa svokallaða stofnandaútgáfu fram að áramótum. Þeir sem gera það geta verið í beinu sambandi við leikjahönnuðinn og haft áhrif á hvernig leikurinn þróast. Niklái segir að þetta verði í boði fram að jólum eða þar til spilarar verða of margir til að slíkt sé mögulegt.
Endurspeglar íslenskan og færeyskan veruleika
Snørið gengur út á að veiða fisk, selja aflann og fyrir tekjurnar er hægt að kaupa stærri báta og öflugri veiðarfæri. Fjarri byggð er líka hægt að skjóta langvíu, álku og toppskarf. Leiksviðið er byggt á höfnum í Færeyjum og Íslandi og veðrið í leiknum endurspeglar raunveruleikann líka.
„Ástæðan fyrir að ég er að bæta höfnum á Íslandi við er að Íslendingar hafa sýnt leiknum mikinn áhuga. Þeir hafa keypt leikinn og verið í sambandi við mig,“ segir Niklái.
Niklái hefur notið hjálpar Íslendinga við að hanna leikinn. „Þeir hafa bent mér á hvernig báta væri best að hafa, hvar miðin eru og hvar vitar eru staðsettir og tekið myndir fyrir mig,“ segir hann.
Staðarheiti og raundýpi þarf að vera rétt
Guðbjörn Jóhann Bergland Kjartansson, vélvirki sem vinnur í sjávarútvegi, hefur verið honum innan handar með tungumálið, staðarheiti og raundýpi í fjörðum svo eitthvað sé nefnt. „Og nöfnin á miðunum og svo náttúrlega þeir fiskar sem veiðast við Ísland, bæði inni í fjörðum og fyrir utan,“ segir hann.
Hann rakst á leikinn á samfélagsmiðlum og hafði samband við Niklái þegar hann rakst á villu í leiknum. Hann hefur gaman af leiknum og bendir á að umhverfið og tíminn endurspegli líka raunveruleikann. „Hvort sem það er rigning eða rok eða bræla eða hvað sem er þá helst það í hendur við leikinn,“ segir Guðbjörn.
Hans uppáhaldshöfn er heimahöfnin í Norðfirði sem hann þekkir best.
Góð samskipti við makann mikilvæg áður en maður sökkvir sér í leikinn
Guðbjörn bendir á að auðvelt sé að sökkva sér í leikinn. „Það þarf að eiga í góðum og mikilvægum samskiptum við maka sinn áður en maður byrjar í þessu. Þetta tekur stundum völdin,“ segir hann.
Niklái segir sjómenn og þá sem starfa í sjávarútvegi sýna leiknum mestan áhuga. Hann viti um færeyska sjómenn sem spili leikinn meðan þeir eru við veiðar.
Sem stendur er hægt að spila í 100 höfnum á Færeyjum og meira en 30 íslenskum höfnum. Fleiri eru á leiðinni því Niklái bætir nokkrum við á hverjum degi og markmiðið er að hafa allar hafnir á Íslandi í leiknum.