10 ráð við hár­losi:  Lærðu að þekkja ein­kennin og finna réttu lausnina - Vísir

10 ráð við hár­losi:  Lærðu að þekkja ein­kennin og finna réttu lausnina - Vísir

10 ráð við hár­losi:  Lærðu að þekkja ein­kennin og finna réttu lausnina - Vísir

Fríða Rut Heimisdóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi Regalo fjallar hér um hárlos og gefur tíu ráð sem hjálpa þér að þekkja einkennin, skilja mögulegar orsakir og finna réttu leiðina til að bregðast við.

Kannski hefur þú alltaf verið með mikið og þykkt hár og aldrei þurft að hafa áhyggjur af hárlosi. En skyndilega tekurðu eftir því að hárburstinn fyllist hraðar en áður eða taglið er ekki lengur jafn þykkt og það var.

Hárið er stór hluti af sjálfsmynd okkar og því eðlilegt að hafa áhyggjur þegar það fer að þynnast eða falla meira en áður. En áður en gripið er til meðferða er mikilvægt að skilja hvað gæti verið að valda breytingunum.

Hárlos getur birst með mismunandi hætti og orsakirnar eru ekki alltaf þær sömu.

1. Taktu eftir fyrstu merkjunum, hvað er eðlilegt?

Við missum að jafnaði um 50–100 hár á dag og það er fullkomlega eðlilegur hluti af endurnýjun hársins. Hvert hár fer í gegnum vaxtarfasa sem getur varað í nokkur ár áður en það fer yfir í hvíldarskeið og fellur að lokum. Nýtt hár getur síðan vaxið úr sama hársekk. Þar sem hársekkirnir eru á mismunandi stigum vaxtarferilsins á hverjum tíma endurnýjast hárið jafnt og þétt án þess að við tökum eftir því.

Ef þú þværð hárið aðeins tvisvar í viku getur talsvert magn af hári safnast saman og losnað við einn þvott. Það þarf því ekki að þýða að eitthvað sé að. Það sem skiptir mestu máli er hvort þú tekur eftir breytingum frá því sem er eðlilegt fyrir þig. Er taglið orðið þynnra, hárskilin breiðari eða virðist hárið hafa misst fyllingu? Þá getur verið gagnlegt að fylgjast betur með þróuninni.

2. Finndu orsökina,hvað gerðist fyrir tveimur til þremur mánuðum?

Þetta er eitt mikilvægasta skrefið þegar kemur að hárlosi.Við tengjum oft hárlosið við það sem er að gerast í lífinu okkar í dag. En hárið getur verið að bregðast við einhverju sem gerðist fyrir nokkrum mánuðum. Alvarleg veikindi, skurðaðgerðir, mikið andlegt álag, áföll, hratt þyngdartap, næringarskortur og ákveðin lyf geta raskað náttúrulegum vaxtarferli hársins. Við slíkt álag geta fleiri hár en venjulega farið úr vaxtarskeiði yfir í hvíldarskeið. Nokkrum mánuðum síðar losna þau og þá getur hárlosið virst koma skyndilega.

Þetta kallast telogen effluvium og er algeng tegund dreifðs hárloss sem getur verið tímabundið.

Spyrðu þig: Hvað hefur líkaminn minn gengið í gegnum síðustu þrjá til fjóra mánuði?

Stundum liggur skýringin þar. Þegar orsökin er tímabundin getur hárvöxturinn jafnað sig smám saman án sérstakrar lyfjameðferðar. Það getur þó tekið marga mánuði að endurheimta fyrri fyllingu hársins. Ekki er alltaf hægt að finna skýra orsök og stundum eru fleiri en einn þáttur að verki.

3. Hormónar og erfðir

Margar konur upplifa óvenjulega þétt og fallegt hár á meðgöngu. Ástæðan er meðal annars sú að aukið magn estrógens getur lengt vaxtarfasa hársins og dregið úr daglegu hárlosi.Eftir fæðingu lækkar estrógenmagnið aftur og hárin sem héldust lengur í vaxtarskeiði fara að losna. Þetta getur valdið áberandi hárlosi nokkrum mánuðum eftir barnsburð en er yfirleitt tímabundið.

Á breytingaskeiði og eftir tíðahvörf geta konur einnig upplifað breytingar á hárinu. Hormónabreytingar geta haft áhrif á hárvöxt en erfðir og fleiri þættir koma einnig við sögu. Sumar konur taka eftir því að hárið verður smám saman fíngerðara, missir fyllingu og þynnist.

Erfðir skipta líka miklu máli

Við arfgenga hárþynningu verða ákveðnir hársekkir smám saman minni og mynda fíngerðari hár. Þetta ferli kallast miniaturization eða smækkun hársekkja og veldur því að hárin verða styttri og þynnri með hverjum vaxtarhring. Þetta getur gerst hjá bæði konum og körlum.Hjá körlum byrjar þynningin oft við gagnaugun eða hvirfilinn en hjá konum sést hún gjarnan sem breikkandi skil. Þess vegna er mikilvægt að greina á milli skyndilegs hárlos og hægfara hárþynningar. Þótt einkennin geti verið lík eru orsakirnar og meðferðarúrræðin ekki endilega þau sömu.

4. Skoðaðu næringuna,fær hárið það sem það þarf?

Hárið er að mestu gert úr próteininu keratíni og líkaminn þarf næga orku og næringarefni til að viðhalda eðlilegum hárvexti.Ef líkaminn fær ekki næga orku eða ákveðin næringarefni getur það raskað náttúrulegum vaxtarferli hársins. Fleiri hár geta þá farið yfir í hvíldarfasa sem getur leitt til aukins hárloss nokkrum mánuðum síðar.Þetta getur meðal annars gerst við hratt þyngdartap mjög takmarkað mataræði eða eftir ákveðnar aðgerðir. Sérstaklega skiptir máli að fá nægilegt prótein og járn en skortur á öðrum næringarefnum getur einnig haft áhrif á hárvöxt.

En það er mikilvægt að muna að meira er ekki alltaf betra þegar kemur að vítamínum og fæðubótarefnum. Of mikil inntaka ákveðinna næringarefna dæmis A-vítamíns eða selens getur jafnvel stuðlað að hárlosi. Það er ekki sjálfgefið að hárvítamín stöðvi hárlos. Ef skortur er ekki til staðar er ekki víst að aukin inntaka hafi nokkur áhrif.

Ef grunur er um næringarskort er rétt að ræða við lækni um hvort ástæða sé til rannsókna.

5. Hárlos eða hárbrot ?

Það er mikilvægt að greina á milli hárloss frá rót (hair shedding) og hárbrota (hair breakage). Þótt hvort tveggja geti valdið því að hárið virðist þynnra eru orsakirnar ólíkar. Þegar hár losnar náttúrulega úr hársverðinum getur stundum sést lítill ljós hnúður á öðrum endanum. Þetta er svokallaður kylfulaga rótendi sem myndast þegar hárið lýkur vaxtarferli sínum. Hann er ekki hársekkurinn sjálfur og því getur nýtt hár vaxið úr sama hársekk. 

Hárbrot verða hins vegar þegar hárþráðurinn sjálfur veikist og brotnar á mismunandi stöðum eftir lengdinni. Margir þekkja slíkar skemmdir eftir aflitun, permanent eða mikla hitanotkun. Þá verða hárin mislöng og hárið getur misst fyllingu án þess að um aukið hárlos frá rót sé að ræða.Þegar hárið er orðið viðkvæmt og brotnar auðveldlega geta sérhæfðar hárvörur skipt miklu máli. 

Kérastase Genesis er þróuð fyrir veikt hár sem hefur tilhneigingu til að brotna og sameinar styrkjandi hárumhirðu og sérhæfðar hársvarðarmeðferðir. Innan línunnar eru vörur sem hafa mismunandi hlutverk, allt frá daglegri umhirðu yfir í markvissari meðferðir fyrir hársvörðinn. Redken Acidic Bonding Concentrate og Joico Defy Damage eru hins vegar sérstaklega ætlaðar til að styrkja og vernda skemmt hár, meðal annars eftir efnameðferðir og mikla hitanotkun.

Redken Acidic Bonding Concentrate byggir á sítrónusýru og sérþróaðri Bonding Care Complex-tækni sem miðar að því að styrkja tengingar innan hárþráðarins á sameindastigi. Formúlan hjálpar til við að bæta ástand skemmds hárs og draga úr hárbrotum eftir efnameðferðir, hitanotkun og annað daglegt álag.

Joico Defy Damage byggir á SmartRelease® tækni þar sem virk innihaldsefni eru geymd í örsmáum fituhjúpum sem kallast lípósóm. Tæknin er hönnuð til að losa innihaldsefnin smám saman og hjálpa til við að styrkja og vernda hárið gegn skemmdum af völdum efnameðferða, umhverfisáhrifa og daglegs álags.

Í þessum vörulínum er að finna hárnæringar, viðgerðarmaska og verndandi meðferðir sem geta hjálpað til við að draga úr frekari skemmdum og hárbrotum. Mikilvægt er þó að muna að þessar vörur meðhöndla ekki undirliggjandi orsakir hárloss frá hársekkjunum.

Því þarf að greina á milli umhirðu fyrir hárið sjálft og meðferða fyrir hársvörðinn. Hárnæring og maskar vinna fyrst og fremst með hárþráðinn sjálfan. Hársvarðarserum er hins vegar ætlað til notkunar á húðinni þar sem hársekkirnir eru staðsettir. Rétt umhirða getur því hjálpað til við að varðveita styrk og fyllingu hársins en þegar hárið fellur í auknum mæli frá rót þarf einnig að skoða mögulegar orsakir hárlossins.

6. Hvað er Aminexil og hvers vegna er það notað í hársvarðarserum?

Aminexil er innihaldsefni sem er notað í ákveðnum faglegum hársvarðarmeðferðum fyrir hár sem hefur tilhneigingu til að falla. Á innihaldslistum kallast það Diaminopyrimidine Oxide. Til að skilja hvernig Aminexil er ætlað að virka er gagnlegt að skoða hvað gerist í kringum hárrótina. Hársekkurinn er staðsettur í húðinni og þaðan vex hárþráðurinn. Í kringum hársekkinn er stoðvefur sem er hluti af því umhverfi sem hársekkurinn starfar í.

Samkvæmt rannsóknum og skýringum L’Oréal er Aminexil þróað með það að markmiði að vinna gegn óæskilegri stífnun stoðvefsins umhverfis hárrótina. Kenningin er sú að með því að hafa áhrif á þennan vef megi stuðla að hagstæðari skilyrðum fyrir hárið og draga úr því að hár losni of snemma. Aminexil hefur verið rannsakað í hársvarðarvörum á bæði konum og körlum. Niðurstöður rannsókna á ákveðnum formúlum með Aminexil hafa sýnt vísbendingar um minna hárlos og aukin þéttleika hársins við reglulega notkun.

Aminexil er meðal annars að finna í sérhæfðum hársvarðarmeðferðum frá Kérastase, L’Oréal Professionnel og Redken.

Redken Acidic Grow Full System Aminexil Ampoules eru dæmi um daglega hársvarðarmeðferð sem er þróuð til að hjálpa til við að draga úr auknu hárlosi og styðja við sterkara og fyllra útlit hársins við rótina.Innan Redken Acidic Grow Full línunnar er einnig sérstakt Scalp & Hair Serum í spreyformi sem inniheldur meðal annars koffín og rakagefandi innihaldsefni. Spreyið er ætlað að styðja við rakajafnvægi hársvarðarins og gefa hárinu fyllra útlit. Það hefur því annað hlutverk en Aminexil ampúlurnar.

Ekki þurfa allir sem upplifa aukið hárlos að hefja lyfjameðferð. Hárlos getur verið tímabundið og tengst til dæmis streitu, veikindum eða breytingum á næringu. Í slíkum tilfellum getur hárvöxturinn jafnað sig þegar undirliggjandi orsök er liðin hjá.Sérhæfðar hárvörur með Aminexil geta verið hluti af daglegri hársvarðarumhirðu en þær eru ekki lyf og koma ekki í stað viðurkenndrar læknismeðferðar þegar hennar er þörf.

Aminexil getur því verið hluti af markvissri hársvarðarumhirðu en rétt greining á orsök hárlossins er áfram mikilvæg.

7. Veldu hársvarðarmeðferð

Þegar þú hefur skoðað mögulegar orsakir hárlossins getur verið gagnlegt að fá ráðgjöf um hvaða hársvarðarserum hentar þér. Nokkrar faglegar hárvörulínur innihalda Aminexil en þær eru ólíkar að samsetningu og notkun.

Kérastase Genesis Sérum Anti-Chute Fortifiant er daglegt hársvarðarserum með 1,5% Aminexil, engiferrótaþykkni og koffín. Genesis er þróuð fyrir veikt hár sem hefur tilhneigingu til að falla og brotna Samkvæmt Kérastase sýndi klínísk prófun á 99 einstaklingum minna hárlos eftir sex vikna daglega notkun. Genesis línan inniheldur einnig sjampó og næringu sem eru ætluð til að styrkja hárþráðinn og draga úr hárbrotum. 

Fyrir karla er einnig fáanlegt Kérastase Genesis Homme Sérum Anti-Chute Fortifiant sem inniheldur 1,5% Aminexil ásamt öðrum innihaldsefnum á borð við kreatín og engiferrótarþykkni. Hjá körlum er þó mikilvægt að hafa í huga að arfgeng hárþynning er algeng og getur þurft sérstaka meðferð.

Redken Acidic Grow Full Scalp & Hair Serum inniheldur 5% Strength Complex ásamt koffíni, azelaínsýru og hýalúrónsýru. Hýalúrónsýra hjálpar til við að viðhalda raka í hársverðinum en koffín hefur verið rannsakað í tengslum við starfsemi hársekkja. Azelaínsýra er þekkt innihaldsefni í húðvörum. Formúlan er þróuð til að styðja við gott ástand hársvarðarins og gefa hárinu fyllra útlit.

Kérastase Genesis Cure Anti-Chute er sérstakur ampúlukúr sem framleiðandinn kynnir fyrir tímabil aukinnar hárlosunar. Formúlan inniheldur 1,5% Aminexil ásamt rhamnose, sykursameind sem er meðal annars rannsökuð vegna áhrifa sinna á húð. Meðferðin er ætluð til að styðja við umhirðu hársvarðarins og draga úr aukinni hárlosun. Hún er ekki sjálfkrafa áhrifaríkari en daglegt serum þótt hún sé kynnt sem markviss meðferðarkúr.

Mikilvægt er að velja meðferð eftir þörfum og fylgja notkunarleiðbeiningum framleiðanda. Þegar vísað er til árangurs eftir sex vikur þarf að hafa í huga að rannsóknir geta verið gerðar á mismunandi formúlum og árangur getur verið einstaklingsbundinn.

8. Gerðu hársvarðarserum að hluta af kvöldrútínunni

Flest erum við orðin vön því að hugsa um húðina í andlitinu. Við hreinsum hana og berum á okkur serum eða næturkrem.

En hversu oft hugsum við um húðina undir hárinu?

Hársvörðurinn er líka húð og þar eru hársekkirnir sem sjá um að mynda nýtt hár. Rétt umhirða getur hjálpað til við að viðhalda góðu ástandi hársvarðarins.

Kvöldið er tilvalinn tími til að bæta hársvarðarserum við daglega húðumhirðu

9. Fylgstu með árangrinum.

Hárlos getur tekið verulega á andlega og valdið bæði áhyggjum og kvíða. Góðu fréttirnar eru að margar tegundir hárloss eru tímabundnar og hárvöxturinn getur jafnað sig þegar undirliggjandi orsök er liðin hjá eða hefur verið meðhöndluð. Það er þó ekki alltaf auðvelt að sýna þolinmæði því hárið vex hægt og það getur tekið marga mánuði að endurheimta fyrri fyllingu.Hárið vex að meðaltali um einn sentimetra á mánuði. 

Það getur því tekið nokkra mánuði að sjá verulegan mun á fyllingu hársins. Jafnvel þótt dregið hafi úr hárlosinu getur liðið lengri tími þar til nýju hárin verða nægilega löng til að auka sýnilega fyllingu. Þegar þú byrjar á hársvarðarmeðferð er gott að taka myndir af hárskilunum og þeim svæðum þar sem hárið hefur þynnst áður en meðferð hefst.

Endurtaktu myndatökuna við sömu birtuskilyrði eftir sex til átta vikur og fylgstu með breytingum.

Virðist minna hár losna við þvott? Hefur hárbrotið minnkað? Er hárið auðveldara í meðhöndlun?

Mikilvægt er þó að greina á milli þess að hárið brotni minna, að færri hár losni úr hársverðinum og að nýr hárvöxtur hafi aukist. Þetta eru þrír ólíkir mælikvarðar á árangur.

Sex vikur geta verið gagnlegur tími til að meta fyrstu breytingar í umhirðunni en þegar markmiðið er að endurheimta þéttleika hársins getur þurft að fylgjast með þróuninni í þrjá til sex mánuði eða lengur allt eftir orsök hárlossins og þeirri meðferð sem er notuð.

10. Hvenær er rétt að leita læknis?

Þótt margar tegundir aukinnar hárloss séu tímabundnar er mikilvægt að þekkja þau einkenni sem kalla á læknismat.

Ef hárið fellur skyndilega í miklu magni, hárlausir blettir myndast eða hársvörðurinn verður rauður, sár eða bólginn er rétt að leita læknis.

Sama á við ef hárþynningin er viðvarandi eða fer versnandi.

Læknir getur metið hvort ástæða sé til blóðrannsókna og kannað meðal annars járnbirgðir og starfsemi skjaldkirtils. Eftir einkennum og heilsufarssögu getur einnig verið ástæða til að rannsaka blóðhag, ákveðin vítamín eða hormón.

Við ákveðnum tegundum hárloss getur lyfjameðferð komið til greina.

Minoxidil er til dæmis lyf sem hefur verið rannsakað við arfgengri hárþynningu og getur hjá sumum hægt á hárlosi og stuðlað að auknum hárvexti.

Aminexil og Minoxidil eru ekki sama efnið og hafa ekki sömu rannsóknarlegu stöðu. Minoxidil er viðurkennd lyfjameðferð við ákveðnum tegundum hárloss en Aminexil er notað í snyrtivörum fyrir hársvarðarumhirðu. Því er mikilvægt að velja meðferð eftir orsök hárlossins.

Mikilvægast er að þekkja einkennin, reyna að finna orsökina og velja réttu leiðina. Því þegar kemur að hárlosi snýst árangurinn ekki alltaf um að gera meira heldur að gera það sem hentar þér og þínu hári.

#hárlosi #lærðu #ráð #við #þekkja


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262963818d/10-rad-vid-har-losi-laerdu-ad-thekkja-ein-kennin-og-finna-rettu-lausnina

📰 Aðrar fréttir

Framkvæmdastjórn ESB boðar endurskoðun á verndaraðgerðum vegna kísilmálms
📅 17.11.2026 👁️ 2
Framkvæmdastjórn ESB boðar endurskoðun á verndaraðgerðum vegna kísilmálms
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að endurskoða verndaraðgerðirnar sem settar voru í nóvember í fyrra vegna kísilmálms, og hittu fyrir ...
Íslendingar falla fyrir færeyskum fiskveiðileik
📅 17.11.2026 👁️ 1
Íslendingar falla fyrir færeyskum fiskveiðileik
„Ég byrjaði á þessu í sumar, í raun bara sem áhugamál,“ segir Niklái Nysted, höfundur Snørið. „Bróðir minn stakk upp á að það gæti verið töff að gera ...
Allt í blóma hjá Eggerti Péturs - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 1
Allt í blóma hjá Eggerti Péturs - Vísir
Eggert Pétursson er fæddur árið 1956 og hefur fyrir löngu skrifað sig í íslenskar sögubækur sem einn ástsælasti listamaður landsins. Hann fæddist í Re...
Umsögnum rigndi inn á lokasprettinum
📅 17.11.2026 👁️ 1
Umsögnum rigndi inn á lokasprettinum
Umsækjendur þurfa bráðum að þéna nærri tvöfalt meira á mánuði til að fá dvalarleyfi eða íslenskan ríkisborgararétt verði áform dómsmálaráðherra að ver...
New plan to improve Playa Blanca in Lanzarote for holidaymakers
📅 17.11.2026 👁️ 1
New plan to improve Playa Blanca in Lanzarote for holidaymakers
Playa Blanca is set to have its first tourism modernisation plan after the Lanzarote Cabildo awarded a contract to draw up proposals for the popular h...
Sagði þel­dökka fréttakonu ó­næma fyrir ó­hreinindum - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 1
Sagði þel­dökka fréttakonu ó­næma fyrir ó­hreinindum - Vísir
Þegar Trump var að leggja af stað í ferðalag til Asíu ræddi forsetinn við blaðamenn fyrir utan Hvíta húsið, eins og hann gerir reglulega. Yamiche Alci...
„Það er vont að missa góðan liðs­mann“ - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 1
„Það er vont að missa góðan liðs­mann“ - Vísir
„Þetta eru vondar fréttir, það er vont að missa góðan liðsmann,“ sagði Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar og oddviti Viðreisnar, um breytingar...
Jón Páll var 19 ára þegar hann fór einn til Grikklands með fullt af peningum - „Hvað er ég að gera?“
📅 17.11.2026 👁️ 3
Jón Páll var 19 ára þegar hann fór einn til Grikklands með fullt af peningum - „Hvað er ég að gera?“
Jón Páll Halldórsson listamaður segist innilega þakklátur fyrir að hafa farið einn til Grikklands aðeins 19 ára gamall með fullt af peningum til að læ...
Jón Gnarr útilokar ekki frekari flótta úr Viðreisn – „Gjörsamlega óþolandi“
📅 17.11.2026 👁️ 3
Jón Gnarr útilokar ekki frekari flótta úr Viðreisn – „Gjörsamlega óþolandi“
Jón Gnarr, þingmaður utan flokka, segir að það kæmi sér ekki á óvart ef fleiri þingmenn Viðreisnar ákvæðu að yfirgefa flokkinn. Hann segir aðstæður in...
Sérfræðingur varpar sprengju eftir að hafa rannsakað krufningargögn Epsteins
📅 17.11.2026 👁️ 3
Sérfræðingur varpar sprengju eftir að hafa rannsakað krufningargögn Epsteins
Bandaríski réttarlæknirinn Michael Freeman telur að Jeffrey Epstein hafi ekki svipt sig lífi í fangaklefa árið 2019, heldur hafi hann verið myrtur.Fre...
Þungt högg fyrir Pútín: Mikilvæg brú sögð hrunin eftir árásir Úkraínumanna
📅 17.11.2026 👁️ 3
Þungt högg fyrir Pútín: Mikilvæg brú sögð hrunin eftir árásir Úkraínumanna
Hluti Kertsj-brúarinnar, sem tengir Krímskaga við meginland Rússlands, er sagður hafa hrunið í sjóinn eftir umfangsmiklar drónaárásir Úkraínumanna síð...
Kærasti SNL-stjörnu fannst látinn - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Kærasti SNL-stjörnu fannst látinn - Vísir
Tintori og Gardner hafa verið í sambandi síðan 2024 og reglulega birt myndir af sér saman á samfélagsmiðlum. Tintori er leikstjóri og kvikmyndagerðarm...
Efast um að Guðrún sé í viðræðum við aðra stjórnarliða
📅 17.11.2026 👁️ 3
Efast um að Guðrún sé í viðræðum við aðra stjórnarliða
Pawel Bartoszek, þingflokksformaður Viðreisnar, gefur lítið fyrir yfirlýsingar Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að hún hefð...
More than 11,000 people arrive by boat in the Canary Islands in two weeks
📅 17.11.2026 👁️ 3
More than 11,000 people arrive by boat in the Canary Islands in two weeks
More than 11,000 people have arrived by boat in the Canary Islands during the first 15 days of November, as emergency services and reception facilitie...
Jóla­gjöfin fyrir þann sem á allt - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Jóla­gjöfin fyrir þann sem á allt - Vísir
Við þekkjum flest einhvern sem erfitt er að velja gjöf handa. Makann sem kaupir sér sjálfur það sem hann vantar. Pabbann sem segist ekkert þurfa. Bróð...
Gerir þú alltaf sömu mistökin seint á kvöldin? – Gerðu þetta í staðinn
📅 17.11.2026 👁️ 3
Gerir þú alltaf sömu mistökin seint á kvöldin? – Gerðu þetta í staðinn
Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, segir að það séu meiri líkur á að þú missir tökin af mataræðinu ef þú ert sífellt að banna þér h...
Bein út­sending: Blaða­mennska á tíma­mótum - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Bein út­sending: Blaða­mennska á tíma­mótum - Vísir
Á málþinginu kynnir Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, fyrstu niðurstöður NORDREN-verkefnisins um upplýsingaóreiðu á ...
Óð ber­fættur í Seljalandsá til að sækja síma á­hrifa­valds - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Óð ber­fættur í Seljalandsá til að sækja síma á­hrifa­valds - Vísir
Áhrifavaldurinn, bresk kona að nafni Meadow Waddington, birti í gær myndskeið á Instagram þar sem hún greindi frá því að hún hefði misst snjallsíma si...
Ráðast í frestuðu fram­kvæmdirnar í há­deginu - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Ráðast í frestuðu fram­kvæmdirnar í há­deginu - Vísir
Lokað verður fyrir umferð af Bústaðavegi inn á rampinn niður á Kringlumýrarbraut til norðurs milli klukkan ellefu og eitt í dag. Búast má við umferðar...
Bankarnir gætu setið uppi með hundruð íbúða – Íslandsbanki keypti 20 á Hlíðarenda
📅 17.11.2026 👁️ 3
Bankarnir gætu setið uppi með hundruð íbúða – Íslandsbanki keypti 20 á Hlíðarenda
Blikur eru á lofti á íslenskum fasteignamarkaði og vara Acro verðbréf við því að brotlending kunni að vera fram undan. Fjárhagserfiðleikar byggingarfy...
The Canary Islands 2027 budget projects record growth in online gambling tax revenue
📅 17.11.2026 👁️ 3
The Canary Islands 2027 budget projects record growth in online gambling tax revenue
On 30th October, the Canary Islands government submitted a draft budget to the regional parliament for the archipelago for 2027, totalling 13.2 billio...
Bankinn keypti 20 íbúðir á Hlíðarenda
📅 17.11.2026 👁️ 3
Bankinn keypti 20 íbúðir á Hlíðarenda
Dótturfélag dótturfélags Íslandsbanka hefur keypt 20 íbúðir í fjölbýlishúsi sem er verið að reisa við Valshlíð og Haukahlíð á Hlíðarenda í Reykjavík. ...
Elsta kona Dan­merkur reyndist nas­isti - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Elsta kona Dan­merkur reyndist nas­isti - Vísir
Kirsten Schwalbe er 112 ára og elsta manneskja Danmerkur í sögunni. Fjölmiðlar í landinu hafa fjallað mikið um hana síðastliðinn mánuð en hún sló meti...
Kerch-brúin hrunin - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Kerch-brúin hrunin - Vísir
Óljóst er hve miklar skemmdirnar eru eftir árásirnar í Kænugarði. Vitali Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, birti í morgun myndband þar sem hann segir...
Hlýtt um helgina, eða þannig - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Hlýtt um helgina, eða þannig - Vísir
Í dag verður austanátt, 10-18 m/s sunnan- og suðaustantil og dálítil slydduél. Annars mun hægari austlæg eða breytileg átt og yfirleitt þurrt. Frost 1...
TUESDAY WEATHER: A warm day ahead across the Canary Islands
📅 17.11.2026 👁️ 3
TUESDAY WEATHER: A warm day ahead across the Canary Islands
The Canary Islands can expect a settled Tuesday, 17th November, with plenty of sunshine after some early cloud in northern areas.Temperatures are expe...
Watch: Predatory Met detective's behaviour became increasingly extreme
📅 17.11.2026 👁️ 3
Watch: Predatory Met detective's behaviour became increasingly extreme
The Metropolitan Police repeatedly missed opportunities to stop det insp Warren Arter, BBC Panorama has found.
Hætta umfjöllun um konu sem reyndist hafa verið í nasistaflokknum
📅 17.11.2026 👁️ 3
Hætta umfjöllun um konu sem reyndist hafa verið í nasistaflokknum
Dönsk fréttastöð hefur ákveðið að hætta að fjalla um elstu konu Danmerkur eftir að upp komst að hún var virkur meðlimur í danska Nasistaflokknum á str...
1.828 umsagnir bárust vegna hækkunar framfærsluskilyrða – Segja umsagnirnar mest frá útlendingum
📅 17.11.2026 👁️ 3
1.828 umsagnir bárust vegna hækkunar framfærsluskilyrða – Segja umsagnirnar mest frá útlendingum
Dómsmálaráðuneytið vill nær tvöfalda framfærslukröfu fyrir dvalarleyfi útlendinga: Fyrir einstakling myndi hún hækka úr 259.951 krónum í 501.186 krónu...
50+: Skvísan hún amma og töffarinn hann afi - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
50+: Skvísan hún amma og töffarinn hann afi - Vísir
Svo kemur árið 2026. Amma er í ræktinni klukkan sex á morgnana. Afi fer út með hundinn á morgnana en í ræktina síðdegis. Spinning. Barnabarnið fær myn...
Nýtt viðurnefni Pútíns vekur athygli – Ríkustu menn Rússlands farnir að horfa til framtíðar án hans
📅 17.11.2026 👁️ 3
Nýtt viðurnefni Pútíns vekur athygli – Ríkustu menn Rússlands farnir að horfa til framtíðar án hans
Ríkustu menn Rússlands eru farnir að velta því fyrir sér hvað taki við þegar Vladimír Pútín forseti hverfur af sjónarsviðinu. Sumir þeirra virðast jaf...
Ung móðir fannst látin í skottinu á eigin bíl – 45 árum síðar kom sannleikurinn í ljós
📅 17.11.2026 👁️ 3
Ung móðir fannst látin í skottinu á eigin bíl – 45 árum síðar kom sannleikurinn í ljós
Í febrúar árið 1981 hvarf 31 árs gömul móðir sporlaust eftir að hafa yfirgefið krá í Indiana-ríki í Bandaríkjunum. Sex dögum síðar fannst lík hennar í...
British tourists generate a record €3.7bn income for Tenerife
📅 17.11.2026 👁️ 3
British tourists generate a record €3.7bn income for Tenerife
British tourists generated €3.71 billion in tourism revenue for Tenerife last year, a 3.6% increase on 2024, according to new figures from Turismo de ...
Gréta María í mál við Sam­kaup - Vísir
📅 17.11.2026 👁️ 3
Gréta María í mál við Sam­kaup - Vísir
Þetta kemur fram á dagskrá dómstóla en málið verður tekið fyrir á morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur.  Prís og Heimkaup eru bæði í eigu Samkaupa. Samkaup...
Himinhár gjaldveggur setji námið í hættu
📅 17.11.2026 👁️ 3
Himinhár gjaldveggur setji námið í hættu
Skólagjöld sem tekin verða upp fyrir nemendur utan Evrópska efnahagssvæðisins við Háskóla Íslands gæti haft veruleg áhrif á aðsókn í alþjóðlegt nám vi...
Hvasst, kalt og dálítil slydduél
📅 17.11.2026 👁️ 3
Hvasst, kalt og dálítil slydduél
Allhvöss austanátt með slydduéljum verður við suður- og suðausturströndina í dag. Búast má við allt að 18 metrum á sekúndu.Annars staðar verður öllu h...
Businessman at centre of Thurrock Council scandal tracked to Bucharest
📅 17.11.2026 👁️ 1
Businessman at centre of Thurrock Council scandal tracked to Bucharest
Reporters find Liam Kavanagh at an exclusive apartment complex in Bucharest.
Watch: How predatory Met detective's behaviour became increasingly extreme
📅 17.11.2026 👁️ 3
Watch: How predatory Met detective's behaviour became increasingly extreme
The Metropolitan Police repeatedly missed opportunities to stop det insp Warren Arter, BBC Panorama has found.
Met Police missed opportunities stop predatory detective who ran rape unit, BBC finds
📅 17.11.2026 👁️ 4
Met Police missed opportunities stop predatory detective who ran rape unit, BBC finds
Warren Arter used his position - running a team investigating sexual assaults - to target women.
Komyshuvakha: Ukraine accuses Russia of targeting rescue operation after strikes that killed 57
📅 17.11.2026 👁️ 4
Komyshuvakha: Ukraine accuses Russia of targeting rescue operation after strikes that killed 57
Efforts to recover bodies after a “double-tap” attack in southern Ukraine are being hampered by continuing Russian strikes, officials say.
Kaliforníuríki fer í mál við OpenAI
📅 17.11.2026 👁️ 4
Kaliforníuríki fer í mál við OpenAI
Rob Bonta ríkissaksóknari Kaliforníu tilkynnti í gær um málsókn ríkisins á hendur gervigreindarfyrirtækinu OpenAI. Málsóknin er byggð á þeim grundvell...
Sextug kona skotin í höfuðið af landtökumönnum
📅 17.11.2026 👁️ 4
Sextug kona skotin í höfuðið af landtökumönnum
Ísraelskir landtökumenn skutu 60 ára gamla palestínska konu í höfuðið í gær. Hún lést skömmu síðar af sárum sínum. Ísraelsher greinir frá því að pales...
Two major Kyiv bridges hit in Russian attack, mayor says
📅 17.11.2026 👁️ 4
Two major Kyiv bridges hit in Russian attack, mayor says
The reported strikes come a day after Ukraine launched its largest recorded drone attack on Russia since the start of the war, according to Moscow.
Crimea bridge shut after reported Ukrainian strike, as Russia hits Kyiv crossings
📅 17.11.2026 👁️ 4
Crimea bridge shut after reported Ukrainian strike, as Russia hits Kyiv crossings
The bridge linking Crimea and Russia has reportedly sustained major damage, while two routes through Kyiv are closed.
US Vice-President Vance will decide 'sometime next year' about presidential run
📅 17.11.2026 👁️ 4
US Vice-President Vance will decide 'sometime next year' about presidential run
The US vice-president tells Fox News that when he makes a decision to run or otherwise, he will "be all in on whatever that decision is".
Rússneskar þotur rufu lofthelgi Japans
📅 17.11.2026 👁️ 4
Rússneskar þotur rufu lofthelgi Japans
Japönsk stjórnvöld greina frá því að orrustuþotur hafi verið sendar af stað eftir að tvær flugvélar sem Japanir telja að séu rússneskar rufu japanska ...
Blaðamaður skotinn til bana í bíl sínum
📅 17.11.2026 👁️ 4
Blaðamaður skotinn til bana í bíl sínum
Kostaríski blaðamaðurinn Camilo Rodriguez var skotinn til bana rétt fyrir utan höfuðborgina San José í dag. Rodriguez var á ferð í bíl sínum þegar tve...
Imran Khan seeks urgent medical care fearing he 'may not return alive'
📅 17.11.2026 👁️ 4
Imran Khan seeks urgent medical care fearing he 'may not return alive'
Pakistan's ex-prime minister, who has been in prison since August 2023, says he has been denied justice.
Failed asylum seekers face removal without five-day notice period
📅 17.11.2026 👁️ 4
Failed asylum seekers face removal without five-day notice period
Under proposed new rules, the Home Office would have six months in which to remove a person without telling them in advance.
Uggandi um að námsleiðin íslenska sem annað mál verði órekstrarhæf
📅 17.11.2026 👁️ 4
Uggandi um að námsleiðin íslenska sem annað mál verði órekstrarhæf
Roberto Luigi Pagani, aðjúnkt við Háskóla Íslands, hefur miklar áhyggjur af því að námsleiðin íslenska sem annað mál verði órekstrarhæf.Háskóli Ísland...