Þegar Trump var að leggja af stað í ferðalag til Asíu ræddi forsetinn við blaðamenn fyrir utan Hvíta húsið, eins og hann gerir reglulega.
Yamiche Alcindor, umrædd fréttakona, spurði hann þá hvað hann hefði að segja við gagnrýnendur sína sem halda því fram að hann verji allt of miklum tíma í framkvæmdaverkefni sín í Washington DC. Á sama tíma væri flugumferðarstjórnunarkerfi Bandaríkjanna að hruni komið.
„Sko, ef þú lítur á Hvíta húsið, þá er það fullkomið,“ sagði Trump.
„Hlustaðu á mig. Ég veit að þú sérð ekki skít, en ef þú lítur á Hvíta húsið… Þú myndir aldrei taka eftir brotnum rúðum, augljóslega, miðað við hvaðan þú kemur, ég veit ekki hvaðan.“
Hann fór því næst að tala um að Hvíta húsið hefði verið í hræðilegu ásigkomulagi þegar hann tók aftur við embætti og það hvað hann væri góður í framkvæmdum.
Þegar Alcindor reyndi að ná athygli forsetans aftur vildi hann ekki heyra það.
„Hlusta þú á mig!“ sagði Trump og fór að tala um hvað nýi þyrlupallurinn sem hann lét gera við Hvíta húsið hefði fengið jákvæða dóma.
Fréttakonan reyndi þá aftur að fá Trump til að svara spurningunni en hann sagði að hún væri „aumkunarverð“.
My Q: What do you say to critics who say you were too focused on D.C. construction projects while our airline systems were crumbling? Pres Trump: If you take a look at the White House, it’s flawless ... I know you don’t see dirt — but if you’d take a look at the WH, you’d never notice broken windows, obviously, from where you come from. I don’t know. https://t.co/3iCSYcgFVN
— Yamiche Alcindor (@Yamiche) November 16, 2026
Fyrr í gær hafði Trump farið mikinn á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðli, vegna fréttaflutnings 60 mínútna um stríðið gegn Íran.
Þá hafði verið fjallað um mannskæða árás Írana á herstöð í Kúveit í upphafi stríðsins í lok febrúar. Sex hermenn dóu í árásinni og margir særðust en fréttin fjallaði meðal annars um það að undirbúningur vegna árása Írana hefði verið slæmur.
Í færslu sinni sagði Trump að Íranar hefðu skotið um átta til níu þúsund sjálfsprengidrónum að skotmörkum í Mið-Austurlöndum en einungis tveir hefðu komist gegnum varnir Bandaríkjamanna og að svipaða sögu væri að segja af skotflaugum Írana.
Kvartaði forsetinn um að það hve skilvirkar varnir Bandaríkjamanna væru hefði ekki verið einnig til umfjöllunar.
Ítrekað reiður í garð blaðamanna
Stutt er síðan Trump hellti sér yfir annan blaðamann eftir að honum misbauð spurning viðkomandi. Sá hafði spurt forsetann út í heilsu hans í kjölfar þess að Trump hætti við tvo kosningafundi.
Trump brást reiður við og hellti sér yfir blaðamanninn. Forsetinn kallaði blaðamanninn sjúkann og sagði hann í hræðilegu formi.
„Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form, þú lítur hræðilega út.“
Hvíta húsið deildi myndbandi af þessum samskiptum á samfélagsmiðlum, með þeim skilaboðum að Trump hefði „rústað“ blaðamanni Reuters.
Trump hefur einnig að minnsta kosti tvisvar sinnum skammað Kaitlan Collins frá CNN fyrir það að brosa ekki nóg. Þá kallaði hann fréttakonu einu sinni „svínku“.