Rússland og Úkraína réðust bæði gegn mikilvægum samgönguinnviðum í nótt. Úkraínumenn réðust á brúna yfir á Krímskaga og Rússar réðust á tvær brýr yfir ána Dnipro í útjaðri Kyiv.
Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir að her landsins hafi skotið niður ríflega 1.400 úkraínska dróna í gær, sem er næstmesti fjöldi dróna á einum segi það sem af er ári.
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, hafði varað þjóð sína við þungum árásum Rússa í aðdraganda ASEAN-ráðstefnunnar á Filippseyjum. Mögulegt þykir að forsetar Bandaríkjanna, Rússlands og Kína fundi í Shenzen í Kína í kjölfarið. Líklega bæri Úkraína og friðarumleitanir þar á góma. Trump kom til Manila í morgun og fer til Shenzen á morgun.
Umferð um Krímskagabrúna stöðvaðist í fleiri klukkustundir eftir árás Úkraínumanna. Umferð stöðvaðist einnig um norður- og suðurbrýr yfir Dnipro með tilheyrandi umferðarteppu í úkraínsku höfuðborginni í morgun. Þar að auki varð rask á hita- og rafmagnsveitu vegna árásanna, að því er Vitali Klitschko, borgarstjóri Kyiv, segir.
Þyngri kröfur
Á sama tíma og þessar þungar árásir eru gerðar á báða bóga, reyna erindrekar Bandaríkjanna og forseti landsins að stilla til friðar. Líklega verður Bandaríkjaforseti einna áfjáðastur í að ræða þau mál á mögulegum þríhliða fundi í dag.
Rússar halda fast í fyrri kröfur sínar fyrir friði og bæta frekar í ef eitthvað er. Nú krefjast Kremlverjar að NATO dragi saman seglin í mið- og austurhluta Evrópu og jafnvel að Finnar, sem eiga 1.300 kílómetra löng landamæri að Rússlandi, dragi sig úr bandalaginu. Finnar gengu í NATO skömmu eftir innrás Rússa í Úkraínu.
Þá vilja Rússar tryggingu fyrir því að Úkraína gangi aldrei í NATO en myndu heimila inngöngu þess í Evrópusambandið.
Einn helsti ásteytingarsteinninn hefur verið að Rússar vilja ekki vopnahlé áður en sest verður við samningaborðið, en Úkraínumenn hafa sagst ekki vilja ræða frið nema vopnahlé komist á fyrst. Bæði þetta og sífellt harðnandi kröfur Rússa þykja sýna hve lítill raunverulegur áhugi sé á að stilla til friðar.