Á vef Veðurstofunnar segir að á nýjum vef séu veittar veðurspár fyrir mun fleiri staði, fleiri möguleikar á kortum og betri yfirsýn yfir viðvaranir og náttúruvá.
„Endurnýjunin er stór liður í áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu stofnunarinnar. Markmiðið er að upplýsingar um veður og náttúruvá séu skýrar, aðgengilegar og auðveldar í notkun.
Vefurinn er endurnýjaður í áföngum. Í dag fara í loftið þær síður sem notendur heimsækja mest, svo sem veðurspár, jarðskjálftagögn, viðvaranir, tilkynningar frá sólarhringsvaktinni og fréttir. Stöðum sem fá veðurspá fjölgar verulega og nýir möguleikar á kortum auðvelda fólki að skoða aðstæður þar sem það býr, starfar eða hyggst ferðast,“ segir í tilkynningunni.
Réttar upplýsingar berist
Haft er eftir Hildigunni H. H. Thorsteinsson, forstjóra Veðurstofunnar, að Veðurstofan gegni mikilvægu hlutverki í að miðla upplýsingum sem varða öryggi almennings, innviða og daglegt líf um land allt. „Með nýjum vef viljum við gera fólki auðveldara að finna þær upplýsingar sem það þarf þegar á reynir, hvort sem er að velja útiföt á morgnanna eða skipuleggja viðbragðsáætlanir.“
Þá segir Hildigunnur að miðlun Veðurstofunnar snúist um að réttar upplýsingar berist í tæka tíð til þeirra sem þurfi á þeim að halda og skilaboðin séu skiljanleg svo hægt sé að bregðast við þeim. „Þetta hefur verið leiðarljós við hönnun á nýjum vef sem við erum mjög stolt að opna í dag,“ segir Hildigunnur.
Innsýn í vísindastarf
Fram kemur að fram undan sé einnig vinna við nýjar síður sem bæta aðgengi samstarfsaðila að rannsóknaverkefnum en þær síður muni einnig gefa almenningi innsýn í vísindastarf Veðurstofunnar.
„Endurnýjun vefsvæða Veðurstofunnar heldur áfram fram á næsta ár, meðal annars við vefsíður fyrir sjóveður, flugveður, vatnafar og upplýsingasíðu um stöðu virkni í helstu eldstöðvum landsins.
Ekki er allt efni sem hefur verið aðgengilegt á eldri vef farið að birtast á nýja vefnum. Meðan á endurnýjuninni stendur eru upplýsingar áfram aðgengilegar á eldri.vedur.is. Hnappur efst á forsíðu nýja vefsins vísar þangað.
Vefurinn mótaður í samvinnu við notendur
Eldri vefur Veðurstofunnar hefur þjónað landsmönnum vel í nær 20 ár. Á þeim tíma hafa tæknin og þarfir notenda breyst mikið. Nýi vefurinn gefur færi á að nýta gögn Veðurstofunnar betur og þróa stafræna þjónustu áfram.
Vefurinn er unninn í samstarfi við Origo og Metall Design Studio. Að baki honum er einnig umfangsmikil endurnýjun á tæknilegum innviðum vefsins þar sem gerðar eru miklar kröfur um rekstraröryggi. Það skiptir sérstaklega máli þegar náttúruvá steðjar að og margir sækja upplýsingar samtímis en ekki síður á tímum þegar netárásum á mikilvæga stafræna innviði fjölgar.
Við þróun vefsins var byggt á könnunum, viðtölum og prófunum með notendum. Sérstök áhersla var lögð á skýra framsetningu, sýnilegar viðvaranir, aðgengi og notkun í farsímum.“