Lokað verður fyrir umferð um frárein af Bústaðavegi niður á Kringlumýrarbraut til norðurs milli 11 og 13 í dag.
Vegagerðin segir að búast megi við umferðartöfum og biður vegfarendur að sýna aðgát og tillitssemi.
Til stóð að loka rampinum í síðustu viku en framkvæmdum var frestað vegna veðurs.
Daginn áður var rampinum af Bústaðavegi niður á Hafnarfjarðarveg til suðurs lokað vegna framkvæmda. Það olli miklum umferðartöfum.
Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar sagði viðbúið að umferðartafir vegna rampsins sem nú á að loka yrðu minni þar sem hann væri minnst notaður.