Sex félög tengd hótelturninum við Skúlagötu hafa verið tekin til gjaldþrotaskipta eftir að framkvæmdir voru stöðvaðar í byrjun nóvember.
Greint er frá gjaldþrotaskiptunum í Lögbirtingablaðinu. Félögin sex eru Rauðsvík ehf., S26 Hotel ehf., S26 Red ehf., Art Verk ehf., Landvík ehf. og S26 Íbúðir ehf.
RÚV greindi fyrst frá því að framkvæmdirnar við hótelturninn, þar sem til stóð að opna Radisson Red hótel á 17 hæðum, hefðu verið stöðvaðar þar sem lokað hafði verið á fjárveitingar til verksins. Aðalkröfuhafi var Arion banki.
Eva Bryndís Helgasdóttir lögmaður hefur verið skipuð skiptastjóri yfir öllum félögunum. Skiptastjóri tekur við öllum eignum, kortleggur eignir og skuldir og reynir að hámarka virði eigna. Flestra augu beinast væntanlega að sjálfum hótelturninum en vilji er til þess að fá nýja aðila til að klára bygginguna. Þar eru milljarðar króna undir.
Fjárfestar sýnt áhuga á að klára turninn
Eva segir í samtali við fréttastofu að fyrsta verk sé að halda utan um starfsfólk fyrirtækjanna. Hjá Art Verk, verktakafyrirtækinu sem sá um hótelbygginguna, hafi starfað 48 manns og um tíu manns hafi starfað hjá öðrum félögum.
Sjálfur hótelturninn var inni í félaginu S26 ehf. og þar liggja mestu verðmætin en nokkrar byggingar í grennd við hótelið er að finna í öðrum félögum. Eva segir unnið að því að koma hótelframkvæmdum aftur í gang. „Það eru alls konar aðilar sem hafa áhuga á þessu enda flottur staður. En þetta er auðvitað hálfklárað verk.“