Greint er frá því í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að 25. september síðastliðinn hafi Hildur Björnsdóttir borgarstjóri átt fund með brotaþolum Skeggja Ásbjarnarsonar sem var um árabil kennari í Laugarnesskóla en kynferðisbrot Skeggja gegn nemendum í skólanum komu ekki upp á yfirborðið fyrr en mörgum árum eftir andlát hans. Skeggi var kennari í Laugarnesskóla frá 1943-1977 og lést 1981. Segir í tilkynningunni að kerfið hafi brugðist hópnum og þeim hafi ekki verið trúað en nú sé þeim trúað.
Hildur hitti brotaþola Skeggja - „Þeim er trúað núna“