Kínverska netverslunin Temu gerir ekki nóg til að hindra sölu á ólöglegum varningi, segir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, og brýtur þannig í bága við viðamikla löggjöf um starfsemi af þessu tagi. Forkönnun ESB hefur leitt í ljós að eftirlitskerfi Temu uppfyllir ekki skilyrði sem sett eru í DSA reglugerðinni (Digital Services Act).
Verði frumniðurstöðurnar staðfestar, gæti það leitt til þess að Temu þurfi að greiða himinháar sektir, allt að 6 prósent af veltu fyrirtækisins á heimsvísu. Í maí sektaði Evrópusambandið Temu um 200 milljónir evra.