Veittar eru sérstakar undanþágur fyrir heilbrigðisstarfsfólk og starfsfólk leik- og grunnskóla í nýjum reglum ráðherra um framlög ríkisins til háskóla.
Breytingarnar voru birtar á vef stjórnarráðsins í gær og snúa að reglum um fjárveitingar til háskóla. Frá og með háskólaárinu 2027 til 2028 verður ekki lengur greitt framlag til háskóla fyrir námsárangur (kláraðar einingar) eða útskrifaða nemendur sem eru frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Með þessu minnka fjárframlög ríkisins til háskóla vegna nemenda sem ekki eru íslenskir eða innan EES. Breytingarnar hafa ekki áhrif á nemendur sem klára nám sitt áður en hún tekur gildi.
Óttast að færri hjúkrunarfræðingar komi til landsins
Eins og áður segir eru heilbrigðisstarfsfólki og starfsfólki leik- og grunnskóla veittar undanþágur frá reglunum og telur ráðuneytið að með þessu sé komið til móts við sjónarmið um mikilvægi íslenskukunnáttu starfsfólks í heilbrigðis- og menntakerfinu.
Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sagði fyrr í mánuðinum að há skólagjöld gætu valdið því að erlendir hjúkrunarfræðingar sæju ekki lengur ástæðu til að koma til að koma til Íslands eða hefja störf án íslenskukunnáttu.
Erlendir hjúkrunarfræðingar eru 11% félagsfólks Fíh, það eru 700 hjúkrunarfræðingar. Stór hluti þeirra kemur frá löndum utan EES.
Margar reglugerðarbreytingar tengdar útlendingum
Lagðar hafa verið til talsverðar breytingar á lögum sem tengjast útlendingum og þeim sem flytjast hingað til lands að undanförnu. Mikil umræða hefur verið um drög dómsmálaráðherra að reglugerð um framfærsluviðmið fyrir þá sem sækja um dvalarleyfi. Verði reglugerðin samþykkt verður framfærslukrafa einstaklings rúmlega 500 þúsund krónur á mánuði.
Sú reglugerðarbreyting myndi einnig hækka framfærsluviðmið fyrir nemendur og setja þau í 375 þúsund krónur úr 260 þúsund krónum og þannig hækka þau um tæpan helming.
Ýmsar undanþágur veittar frá reglunum
Í tilfellum heilbrigðisstarfsmanna og starfsfólks leik- og grunnskóla þarf þó áfram að uppfylla skilyrði um dvalarleyfi vegna atvinnuþátttöku og diplómanám í íslensku sem öðru máli á háskólastigi. Ásamt þessu verður háskólum veitt svigrúm til að fella niður skólagjöld nemenda utan EES.
Aðrar undanþágur eru frá breytingunum og ná þær til eftirfarandi hópa:
- Nemenda með ótímabundið dvalarleyfi,
- Nemenda sem hafa tiltekinn fjölda íslenskra ríkisborgara í fjölskyldu sinni
- Borgara innan EES eða EFTA,
- Einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar,
- Nemenda í alþjóðlegu háskólasamstarfi,
- Nemenda sem stunda nám á grundvelli þróunarsamvinnu við Ísland,
- Doktorsnema