Samtökin þrjú eru GQUAL Campagin, sem berjast fyrir jafnrétti innan alþjóðlegs réttarkerfis, WILPF, alþjóðasamtök kvenna fyrir friði og frelsi, og Adolescent Girls Summit, sem vinnur að auknum áhrifum og leiðtogahlutverki ungra stúlkna.
Verðlaunin voru afhent af Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, stjórnarformanni og einum stofnanda Reykjavík Global Forum á Heimsþingi kvenleiðtoga sem fer fram í Hörpu. Yfir fimm hundruð leiðtogar og áhrifafólk frá meira en níutíu löndum sækja þingið sem hefur yfirskriftina Power, Together for Community.
„Á tímum þegar sífellt er vegið að þeim árangri sem náðst hefur í jafnréttismálum er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að beina sjónum að þeim sem sýna með verkum sínum hversu miklu samstaða og samstarf geta áorkað,“ er haft eftir Hönnu Birnu í tilkynningu.
GQUAL Campaign fékk verðlaun fyrir að vinna með stjórnvöldum, alþjóðastofnunum og félagasamtökum í því að stuðla að því að konur eigi jafnan rétt til þátttöku og áhrifa innan þeirra stofnana sem móta alþjóðalög, réttlæti og mannréttindi. Samtökin voru stofnuð árið 2015.
WILPF fékk verðlaunin fyrir áratugalangt starf í þágu jafnréttis og friðar. Þau voru stofnuð árið 1915 þegar konur komu saman í Haag til að krefjast þess að fyrri heimsstyrjöldinni lyki.
Þá fékk Adolescent Girls Summit verðlaun fyrir þá vinnu að styðja við ungar konur til að verða virkari þátttakendur og leiðtogar í eigin samfélögum. Markmið verkefnisins er að efla áhrif, sjálfstæði og þátttöku stúlkna á aldrinum tíu til nítjan ára í Afríku.