Ekki sér fyrir endann á kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair, en fundur var haldinn í húsakynnum ríkissáttasemjara fyrr í dag.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir fundinn hafa gengið vel, en að enn sé verið að fikra í þá átt að fólk geti talað saman. Boðað hefur verið til nýs fundar klukkan tíu á morgun.
„Hann gekk bara vel. Það var sem sagt haldið áfram með verkefni sem við höfðum byrjað að kryfja á föstudaginn og við þurftum að safna gögnum og vinna ákveðnar greiningar í millitíðinni. Það var skilað úr því í morgun og síðan var reynt að stilla upp vinnuprógrammi fyrir næstu daga og við höldum áfram klukkan tíu í fyrramálið,“ segir Ástráður við mbl.is.
Sérðu fyrir endann á þessu?
„Nei. Maður veit aldrei hvenær maður sér fyrir endann, við erum ekki komin í neinn svona lokafasa. Við erum enn að feta okkur inn í það að fólk geti talað saman og það er allavega einhver byrjun.“
Ákveðinn sigur ef menn geta talað saman
Aðspurður segir hann ómögulegt að segja til um hve langan tíma viðræðurnar muni standa yfir.
„Þetta eru í sjálfu sér ekkert rosalega mörg atriði en það er bara mjög langt á milli manna, en um leið og menn geta byrjað að tala saman að þá er strax ákveðinn sigur unninn,“ segir Ástráður.
„Í dag vorum við að fjalla um vaktskrár og hvíldartímamál. Vinnuálag og svigrúm til skráargerðar,“ bætir hann við.
Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, sagði í samtali við mbl.is í gær að kröfur flugmanna snerust ekki um laun, heldur að þeir gætu gætt meira jafnvægis á milli vinnu og einkalífs. Þeir hafi gefið mikið eftir í samningum sínum á tímum Covid og margir hafi lengi verið undir miklu vinnuálagi.